Fjölskylda árásarmannsins er í felum | markvörðurinn baðst afsökunar Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 24. desember 2011 14:00 Wesley W er nafn sem flestir þekkja í Hollandi og víðar en hann gerði sig sekan um ótrúlegt dómgreindarleysi þegar hann réðst á markvörð AZ Alkmaar í leik gegn Ajax á dögunum. Getty Images / Nordic Photos
Wesley W er nafn sem flestir þekkja í Hollandi og víðar en hann gerði sig sekan um ótrúlegt dómgreindarleysi þegar hann réðst á markvörð AZ Alkmaar í leik gegn Ajax á dögunum. Fjölskylda Wesley hefur tekið þá ákvörðun að fara í felur og mun ekki láta á sér bera á næstu dögum og jafnvel vikum. Hinn 19 ára gamli Hollendingur, sem er stuðningsmaður Ajax, hljóp inná völlinn og reyndi að sparka í Esteban Alvarado. Markvörður AZ Alkmaar svaraði í sömu mynt og fékk að líta rauða spjaldið í kjölfarið. Það er önnur saga. Fjölskylda Wesley hefur tekið þá ákvörðun að fara í felur eftir atvikið en margir stuðningsmenn Ajax og enn fleiri hjá AZ Alkmaar eru æfir yfir atvikinu sem hefur sett svartan blett á hollensku knattspyrnuna. Hollenska dagblaðið Telegraaf greinir frá því að móðir Wesley hafi tekið þessa ákvörðun. „Það eru 35.000 manns sem hata okkur," sagði hún m.a. í viðtali við blaðið. Dómari leiksins vísaði Alvarado af leikvelli eftir að hann sparkaði í Wesley en sá dómur var síðar dreginn til baka af hollenska knattspyrnusambandinu. Alvarado gaf þá skýringu að hann hafi aðeins verið að verja sig og taldi hann að áhorfandinn hafi verið með hníf. Markvörðurinn baðst afsökunar á hegðun sinni og vonast til þess að þetta atvik verði ekki til þess að ungir leikmenn taki upp á því að gera slíka hluti. Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur tekið upp hanskann fyrir markvörðinn og varið ákvörðun hans. „Ég get vel skilið að menn bregðist svona við ef eitthvað fífl ræðst að manni," sagði Rutte.
Fótbolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Sjá meira