Helmingur landsfundarfulltrúa styður Bjarna Þorbjörn Þórðarson skrifar 18. nóvember 2011 18:45
Helmingur kjörinna landsfundarfulltrúa í skoðanakönnun Stöðvar 2 ætlar að kjósa Bjarna Benediktsson í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á sunnudaginn. Tæplega þrjátíu og sjö prósent ætla að styðja Hönnu Birnu en aðrir hafa ekki gert upp hug sinn eða neita að svara. Stóra fréttamál helgarinnar er vafalaust formannskjörið hjá Sjálfstæðisflokknum en mikil spenna er í Laugardalshöllinni. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis ákvað að gera skoðanakönnun meðal kjörinna landsfundarfulltrúa til að athuga hvern þeir vildu sjá sem næsta formann flokksins. Um var að ræða óvísindalega könnun, en þetta er fyrsta könnunin sem birtist þar sem eingöngu kjörnir landsfundarfulltrúar taka þátt. Könnunin var leynileg og fengu þeir sem við ræddum við kjörseðil með nöfnum Bjarna og Hönnu Birnu. Þá hvöttum við fólk sem ekki vildi taka afstöðu til þeirra tveggja að skila auðu. Hanna Birna með 36,5 prósent stuðning Við töluðum við 52 landsfundarfulltrúa, eða 3,3 prósent kjörinna fulltrúa á landsfundinum. Við reyndum að tala við fulltrúa á breiðum aldri, unga sem aldna og fulltrúa af báðum kynjum. Af 52 landsfundarfulltrúum ætla 26 að kjósa Bjarna Benediktsson en það er 50 prósent aðspurðra í könnuninni. Nítján merktu við nafn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, eða 36,5 prósent. Þá voru fjórir kjörseðlar auðir, eða 7,7 prósent og þrír neituðu að taka þátt, sem er 5,8 prósent. Taka skal fram að könnunin er tekin degi eftir ræðu Bjarna Bendiktssonar við setningu landsfundarins. Báðir frambjóðendur eiga eftir að flytja sínar framboðsræður en það verður á morgun. Síðan verður gengið til atkvæða um hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins á sunnudag. Niðurstaða í könnun Stöðvar 2 er nokkuð á skjön við niðurstöður í skoðanakönnunum meðal almennings og stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins en í þeim hefur Hanna Birna mælst með mun meiri stuðning en Bjarni. thorbjorn@stod2.is
Tengdar fréttir Kjósa flokkinn frekar undir forystu Hönnu Birnu Almennir kjósendur segjast líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna Kristjánsdóttir verður kjörinn formaður flokksins. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem stuðningsmenn hennar létu framkvæma. 14. nóvember 2011 18:16 Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Sjá meira
Kjósa flokkinn frekar undir forystu Hönnu Birnu Almennir kjósendur segjast líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna Kristjánsdóttir verður kjörinn formaður flokksins. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem stuðningsmenn hennar létu framkvæma. 14. nóvember 2011 18:16