Innlent

Lesendum Fox News þykja nærfatauglýsingarnar óhugnanlegar

Myndirnar umdeildu.
Myndirnar umdeildu.
„Eins mikið og ég vildi bregðast við rógburðinum sem ég og dóttir mín höfum þurft að þola þessa vikuna, hef ég kosið að hefja mig upp fyrir slíkt þras," segir Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður, sem hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir að sitja fyrir á nærfötunum ásamt tæplega tvítugri dóttur sinn, í viðtali við vefsíðuna Lingerietalk.com.

Mæðgurnar auglýstu nærfatnað fyrirtækisins The Lake and stars, en auglýsingarnar voru afar umdeildar í Bandaríkjunum. Meðal annars voru mæðgurnar harðlega gagnrýndar á vefsíðunni Hufington Post auk þess sem Fox News sjónvarpsstöðin fjallaði um málið í The Today Show.

Á vefsíðu Fox News var hægt að kjósa um það hvort lesendum þættu auglýsingarnar sætar eða óhugananlegar (e. creepy). 84 prósent þeirra sem tóku þátt í netkönnuninni þóttu auglýsingarnar óhugnanlegar.

Það var ekki bara í Bandaríkjunum þar sem fólk hneykslaðist á mæðgunum. Þannig gagnrýndi María Lilja Þrastardóttir auglýsingarnar og velti því fyrir sér í pistli á Smugunni að með auglýsingunum væri verið að klámvæða móðurástina.

Jóhanna segir í fyrrnefndu viðtali að henni þyki auglýsingarnar fallegar og hafi enga þörf fyrir að verja þær sérstaklega.


Tengdar fréttir

Léttklæddar íslenskar mæðgur hneyksla Bandaríkjamenn

"Það hefur enginn stoppað okkur úti á götu eða hringt en gagnrýnin á netinu hefur ekki farið fram hjá okkur,“ segir Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður um viðbrögðin við auglýsingaherferð sem skartar henni og dóttur hennar, Indíu Salvöru Menuez, í aðalhlutverki.

María Lilja um nærfatamæðgur: Auglýsing með margar klámtilvísanir

„Þykir okkur ekki undarlegt að stilla upp móður og dóttur í kynþokkafullum nærklæðum í auglýsingu og eru það ekki eðlileg viðbrögð allra að staldra aðeins við og spyrja nokkurra siðferðisspurninga?“ spyr femínistinn María Lilja Þrastardóttir, sem gagnrýnir íslensku mæðgurnar sem voru í nærfataauglýsingu á vegum undirfatafyrirtækisins The Lake & Stars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×