Erlent

Obama sendir hermenn til Úganda

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Mynd/AFP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, gerði í dag opinberar áætlanir sínar um að senda 100 bandaríska hermenn til afríkuríkisins Úganda. Hermennirnir munu síðan leggja heimamönnum lið í baráttu sinni við þarlendan uppreisnarher sem er sagður einn sá harðsvíraðasti í Afríku.

Ætlun Obama er að bandarísku hermennirnir starfi sem ráðgjafar úganska hersins hvað varðar aðgerðir til að handsama leiðtoga uppreisnarhersins sem þekktur er undir enska nafninu the Lord's Resistance Army. Þeir muni hinsvegar ekki sjálfir taka þátt í bardögum ásamt þarlendum herjum.

Úganski uppreisnarherinn er sagður hafa staðið fyrir alvarlegum glæpum á borð við morð, nauðganir og barnarán í fjölda ára, en hann var stofnaður árið 1987.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×