Erlent

Segir Hitler hafa lifað góðu lífi í Argentínu eftir stríð

Hitler á að hafa náð gamals aldri og alið tvær dætur.
Hitler á að hafa náð gamals aldri og alið tvær dætur.
Breski blaðamaðurinn og rithöfundurinn, Gerrard Williams, heldur því fram í viðtali við Sky fréttastofuna að hann hafi fundið yfirþyrmandi sannanir fyrir því að Adolf Hitler hafi alls ekki framið sjálfsmorð í neðanjarðarbyrgi í Berlín árið 1945 - eins og sögubækurnar segja til um - heldur hafi hann flúið til Argentínu ásamt Evu Braun.

Williams gaf nýverið út bókin  „Grái úlfurinn" þar sem hann, ásamt meðhöfundi, grennslast fyrir um raunveruleg örlög einræðisherrans. Williams fullyrðir að hann hafi sannanir og vitnisburð íbúa í Argentínu sem sýni fram það að Hitler hafi lifað góðu lífi eftir stríðið, eða alveg þangað til hann lést af eðlilegum orsökum árið 1962.

Hluti af hausskúpu Hitlers er varðveitt í Rússlandi en að sögn Williams hafa hans rannsóknir leitt í ljós að hauskúpan tilheyri í raun konu.

Og samsærið verður flóknara þegar Williams heldur því fram að ekki aðeins hafi Hitler flúið Berlín, lifað í Argentínu og alið þar tvær dætur - heldur hafi allt þetta gerst með vitund Bandaríkjamanna.

Williams vill meina að sannleikurinn sé nú fyrst að brjótast fram eftir að Argentína varð frjálst land. Þegar Hitler á að hafa flúið þangað ríkti þar fasísk ríkisstjórn og því auðveldara að leyna sannleikanum.

Þess má geta að verið er að vinna að kvikmynd eftir kenningum höfundanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×