Foreldrar telpunnar vilja afskipti ráðuneytis Erla Hlynsdóttir skrifar 30. september 2011 19:00
Foreldrar telpu sem piltur á Akranesi káfaði á, hafa leitað til mennta- og menningarmálaráðuneytisins og óskað eftir því að pilturinn verði færður í annan skóla. Úrræði ráðuneytisins eru þó afar takmörkuð. Fréttablaðið greinir frá því í dag ung telpa á Akranesi hefur í skólanum ítrekað þurft að hitta unglingspilt sem sýndi henni óeðlilega kynferðislega hegðun. Samkvæmt heimildum fréttastofu káfaði pilturinn á kynfærum hennar. Þetta mun hafa gerst á síðasta ári þegar telpan var í heimsókn á heimili drengsins. Tveir grunnskólar eru á Akranesi og vilja foreldrar stúlkunnar að pilturinn verðir færður í hinn skólann. Vegna vaxandi kvíða telpunnar að undanförnu hafa þau haldið henni frá skóla í viku. Skóla- og bæjaryfirvöld hafa neitað að færa piltinn milli skóla þar sem hann hefur ekki brotið gegn agareglum skólans. Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri á Akranesi, ber við að óheimilt sé að flytja barn úr skóla án samþykkis forráðamanna þess. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, tekur fram að hann getur ekki tjáð sig um einstök mál. Almennt leggur hann áherslu á að þegar gerandi er barn sé málsmeðferð önnur en þegar um fullorðinn geranda að ræða. Meginreglan sem barnaverndaryfirvöld fara eftir er að bæði þolanda og geranda sé veitt viðeigandi aðstoð, en síður er gripið til refsiúrræða gegn geranda þar sem það er talið síður líklegt til árangurs. Foreldrar telpunnar vilja róttækari aðgerðir. Þeir hafa leitað til menntamálaráðuneytins og óskað eftir að það blandi sé í málið og beiti sér fyrir því að hann verði færður í annan skóla. Samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu mega þeir búast við formlegu svari stax eftir helgina. Sé tekið mið af gildandi lögum um grunnskóla má telja ólíklegt að ráðuneytið geti beitt sér í málinu.
Tengdar fréttir Óásættanlegt að bregðast ekki við Lögmaður foreldra sem tekið hafa unga dóttur sína úr skóla á Akranesi segir óásættanlegt ef yfirvöld í bænum ætla ekki að taka á málinu. Í skólanum hefur telpan reglulega hitt unglingspilt sem nýlega kom í ljós að hefur brotið gegn henni kynferðislega. 30. september 2011 07:00 Tóku dóttur sína úr skóla af ótta við að hún hitti geranda Foreldrar á Akranesi hafa ekki sent dóttur sína í skólann í rúma viku af ótta við að þar muni hún hitta unglingspilt sem nýverið kom í ljós að hefur brotið gegn henni kynferðislega. 30. september 2011 07:00 Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira
Óásættanlegt að bregðast ekki við Lögmaður foreldra sem tekið hafa unga dóttur sína úr skóla á Akranesi segir óásættanlegt ef yfirvöld í bænum ætla ekki að taka á málinu. Í skólanum hefur telpan reglulega hitt unglingspilt sem nýlega kom í ljós að hefur brotið gegn henni kynferðislega. 30. september 2011 07:00
Tóku dóttur sína úr skóla af ótta við að hún hitti geranda Foreldrar á Akranesi hafa ekki sent dóttur sína í skólann í rúma viku af ótta við að þar muni hún hitta unglingspilt sem nýverið kom í ljós að hefur brotið gegn henni kynferðislega. 30. september 2011 07:00