Eiður Smári kom inn á sem varamaður og skoraði eftir mínútu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2011 17:28 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Heimasíða AEK
Eiður Smári Guðjohnsen byrjaði á varamannabekknum hjá AEK Aþenu í dag þegar liðið sótti Skoda Xanthi heim í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta. Íslenski landsliðsmaðurinn var hinsvegar fljótur að láta til sín taka þegar hann kom inn á 75. mínútu og var búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið mínútu síðar. Eiður Smári lagði einnig upp síðasta mark AEK í leiknum. AEK Aþena vann leikinn 4-3 eftir að hafa lent 0-1 undir eftir aðeins þrettán mínútur. Kólumbíumaðurinn Fabián Vargas og fyrirliðinn Nikos Liberopoulos voru búnir að koma AEK í 2-1 fyrir hálfeik. Eiður Smári kom inn á 75. mínútu fyrir Nikos Liberopoulos fyrirliða sem varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Það tók Eið aðeins eina mínútu að skora en hann skoraði markið af stuttu færi eftir góðan undirbúning frá Kamerúnmanninum Steve Leo Beleck. Skoda Xanthi náðu að minnka muninn í 3-2 á 84. mínútu en Eiður Smári lagði upp mark fyrir Victor Klonaridis sem kom AEK í 4-2. Eiður hafði áður fengið gult spjald fyrir að tefja. Xanthi skoraði síðan þriðja markið sitt rétt fyrir leikslok og það var því mark Eiðs Smára sem á endanum skildi á milli liðanna. Eiður Smári hafði ekki náð að skora í fjórum fyrstu opinberu leikjum sínum með AEK-liðinu en þar á meðal var 1-0 sigur liðsins á Diethnis Enosis Ergotelis í fyrsta leik liðsins í grísku deildinni. AEK hefur því unnið tvo fyrstu leiki sína í grísku úrvalsdeildinni.
Fótbolti Mest lesið Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Arteta vill bæta við hópinn í dag Enski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Fleiri fréttir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjá meira