Fótbolti

Blóðug slagsmál í Argentínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Argentínumenn eru ekki bara góðir í fótbolta. Þeir eru líka mjög skapheitir og slagsmálin sem brjótast út á fótboltaleikjum þar ytra eru engu lík.

Afar ljótt atvik átti sér stað í neðrideildarleik þar á dögunum í leik Atletico Libertad de Villa Trinidad og Deportivo Ferro de San Cristobal. Ekki stystu liðanöfnin í bransanum.

Ekki er vitað nákvæmlega hvað varð þess valdandi að allt varð brjálað en atvikið átti sér stað eftir að Atletico hafði komist í 3-2 í leiknum.

Sérstaklega er ljótt þegar tveir leikmenn sparka fast í höfuð annars leikmanns sem liggur á vellinum. Dómarinn fékk líka sinn skammt af barsmíðum og var fluttur á spítala.

Áhorfendur tóku einnig virkan þátt í slagnum sem má sjá hér að ofan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×