Fótbolti

Riise verður ekki með gegn Íslandi á morgun

Stefán Árni Pálsson skrifar
John Arne Riise í leik með norska landsliðinu.
John Arne Riise í leik með norska landsliðinu.
Varnarmaðurinn, John Arne Riise, verður ekki með norska landsliðinu gegn okkur Íslendingum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu annað kvöld.

Leikmaðurinn meiddist í leik með félagsliði sínu í síðustu viku en Riise leikur með enska knattspyrnufélaginu Fulham.

Auk Riise mun Morten Gamst Pedersen, leikmaður Blackburn, einnig missa af leiknum vegna meiðsla. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir Norðmenn, en þeir eru í harðri baráttu um að komast á lokamótið sem fram fer í Úkraínu og Póllandi á næsta ári.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð2Sport kl. 17:30, en Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður, er staddur í Noregi og mun lýsa leiknum þaðan. Vísir verður einnig með beina textalýsingu frá leiknum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×