Spánn, Holland og Ítalía geta tryggt sig inn á EM í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2011 15:30 Spánverjar ættu að tryggja sig inn á EM í kvöld. Mynd/AFP
Þrjár þjóðir eiga möguleika á því í kvöld að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram í Póllandi og Úkraínu næsta sumar. Þjóðverjar voru fyrstir til að komast upp úr undankeppninni á föstudaginn var en það gæti bæst í hópinn í dag. Ítalir geta tryggt sig inn á EM vinni þeir Slóveníu á Stadio Artemio Franchi vellinum í Flórens. Ítalir hafa átta stigum meira en Slóvenía og Serbía en Slóvenía hefur leikið leik meira en hinar þjóðirnar og á því ekki lengur möguleika á því að vinna riðilinn. Hollendingar geta líka komist inn á EM í kvöld en þeir þurfa þá líka að treysta á önnur úrslit. Ef Holland vinnur Finnland í Helsinki og Svíar vinna ekki San Marínó þá er hollenska liðið búið að vinna riðilinn. Það eru samt ekki miklar líkur á því að Svíar tapi stigum á móti San Marínó sem steinlá 0-11 á móti Holland á föstudaginn. Spánverjar geta líka komist inn á EM í kvöld en til þess að svo verði þá þurfa Heims- og Evrópumeistararnir að vinna Liechtenstein á heimavelli sem verður að teljast líklegt. Danir og Norðmenn mætast einnig í gríðarlega mikilvægum leik í okkar riðli. Portúgalir spila ekki í kvöld og eiga því leik inni á Norðmenn en það eiga Danir líka eftir leik kvöldsins. Vinni Norðmenn þá eru þeir í það minnsta búnir að tryggja sér sæti í umspilinu og tap Dana myndi þýða að þeir geta ekki lengur unnið riðilinn en eiga enn möguleika á sæti í umspilinu. Svíar (E-riðill), Frakkar (D-riðill), Grikkir (F-riðill) og Króatar (F-riðill) eiga möguleika á því að tryggja sér í það minnsta sæti í umspili í kvöld en Englendingar (G-riðill) eru þegar öryggir með sæti í umspili. Efsta liðið í hverjum riðli kemst beint áfram á EM ásamt því liði sem nær besta árangrinum í 2. sæti. Hin átta liðin sem enda í 2. sæti í sínum riðli fara síðan í umspil þar sem fjögur lið tryggja sér sæti á EM.
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Fleiri fréttir Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ Sjá meira