Erlent

Lýsa yfir endalokum stjórnar Gaddafi

Tímabili Gaddafi lýkur í dag.
Tímabili Gaddafi lýkur í dag.
Þrátt fyrir að harkalegir bardagar geysi enn í Tripoli, höfuðborg Líbíu, og ekkert sé vitað um dvalarstað Muammar Gaddafi forseta, hefur forsprakki uppreisnarmanna þegar lýst yfir lokum tímabils stjórnar Gaddafi. Þetta kemur fram á vef fréttaveitunnar Al Jazeera.

Leiðtogar heimsins hafa keppst við að krefjast þess að Gaddafi segi af sér. Barack Obama bandaríkjaforseti sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem hann sagði Gaddafi verða að átta sig á því að hann stjórnaði Líbíu ekki lengur.

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, sagði Gaddafi vera að falla og hvatti hann til að segja af sér.

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hvatti Gaddafi til að láta af þýðingarlausri mótspyrnu.

Utanríkisráðherra Egyptalands viðurkenndi stjórn uppreisnarmanna nú fyrr í dag og lýsti yfir stuðningi við hana.

Nabil al-Arabi, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, lýsti yfir stuðningi við uppreisnarmenn.

Loks hefur heimsmarkaðurinn tekið kipp vegna væntanlegrar uppgjafar Gaddafi og olíuverð hækkað nokkuð í dag.


Tengdar fréttir

Sigur ekki í höfn fyrr en Gaddafí verður handsamaður

Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir brotthvarf Múammars Gaddafís af valdastóli í Líbíu en stuðningsmenn hans berjast þó enn á nokkrum svæðum í höfuðborginni Trípólí. Það sem af er degi hefur verið hart barist, sérstaklega í kring um aðsetur Gaddafís.

Þrír synir Gaddafís nú í haldi

Þrír synir Gaddafís hafa verið teknir höndum, þar á meðal Saíf, sem talinn var líklegastur til þess að taka við af föður sínum. Ekkert hefur þó frést af Gaddafí sjálfum en talsmaður uppreisnarmanna segist telja að hann fari annað hvort huldu höfði í höfuðborginni eða þá að hann hafi flúið til suðurhluta landsins og jafnvel yfir til nágrannaríkjanna Tsjad eða Alsír.

Fagnaðarlátunum linnir ekki

Líbískir borgarar fagna látlaust nú þegar líbískir uppreisnarmenn eru komnir á Græna torgið, sem er miðhluti höfuðborgarinnar Trípolí í Líbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×