Bændasamtökin ekki kvartað undan Þórólfi 25. ágúst 2011 18:00 Þórólfur Matthíasson
Bændasamtök Íslands segja í tilkynningu að þau hafi ekki fundað með háskólarektor um gagnrýni Þórólfs Matthíassonar, deildarforseta hagfræðideildar Háskóla Íslands, um greinaskrif hans í Fréttablaðinu þar sem hann gagnrýnir framleiðslu og verðlagningu sauðfjárafurða harðlega. Í tilkynningu frá Bændasamtökunum segir að það hafi Landssamtök sauðfjárbænda aftur á móti gert, og samkvæmt upplýsingum þeirra var aldrei krafist áminningar eða uppsagnar Þórólfs Matthíassonar eins og skilja mátti af orðum hans. Svo segir oðrrétt: „Rétt er að taka fram að Það er annað hvort hugarburður Þórólfs eða þá að hann hefur fengið rangar upplýsingar frá yfirmönnum sínum." Svo segir í tilkynningunni: „Í Fréttablaðinu í dag telur hann sér sæma að atyrða sauðfjárbændur með þeim hætti að þeir þiggi milljarða króna í opinber framlög án nokkurra skilyrða. Miðað við allar þær athugasemdir sem settar hafa verið fram í svargreinum vegna ranghermis deildarforsetans, sem væntanlega fer með faglegt fyrirsvar hagfræðideildar, má vera ljóst að ekki þýðir að halda uppi málefnalegum samræðum á þeim nótum sem hann notar í umfjöllun um sauðfjárbúskap. Því er orðum Þórólfs enn og aftur mótmælt og vísað í fyrri rökstuðning bænda sem komið hefur fram í fjölmiðlum. Enn fremur óska Bændasamtök Íslands eftir að koma því á framfæri við deildarforsetann, af fenginni reynslu, að umræða um veigamikil hagsmunamál heillar atvinnugreinar þurfi að fara fram á ábyrgum forsendum." Hægt er að lesa grein Þórólfs hér fyrir neðan.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Fleiri fréttir Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“