Mæður og ömmur hjartveikra barna fengu fyrstu glossin 11. ágúst 2011 14:25 Fyrstu glossin voru afhent í dag en átakið hefst á morgun Mynd Vilhelm
Góðgerðafélagið „Á allra vörum" afhenti í dag fyrstu Dior-glossin nokkrum mæðrum og ömmum sem allar hafa kynnst því á eigin skinni að eiga hjartveik börn. Átakið hefst formlega á morgun en um er að ræða fjórðu landssöfnun samtakanna. Í ár beinir „Á allra vörum" kastljósinu að Neistanum og málefnum hjartveikra barna, en um 70 börn greinast með hjartagalla árlega. Sérstakt hjartatæki fyrir börn á Barnaspítala Hringsins er nú komið til ára sinna og er veruleg vöntun á endurnýjun. Mikið álag er á tækið þar sem það er eitt sinnar tegundar á landinu og notað oft á dag til að greina tilfelli í fóstrum svo og nývoðungum. „Það er með gleði og bjartsýni í hjarta sem við leggjum af stað í þessa fjórðu ferð okkar því málefnið er bæði þarft og viðráðanlegt. Tilhugsunin um að svona tæki bjargi litlum mannslífum og hjörtum barnanna okkar, gerir það einnig auðveldara og vonumst við stöllur til þess að þjóðin taki okkur jafn vel og undanfarin ár", segir Gróa Ásgeirsdóttir ein forsvarskvenna félagsins. Átakið hefst 12. ágúst og þá með sölu á hinum landsþekktu „Á allra vörum" varaglossum frá Dior. Tveir nýir litir verða í boði og fást þeir hjá viðurkenndum Dior snyrtivöruverslunum um land allt. Einnig verður hægt að panta gloss hjá Neistanum, Síðumúla 6
Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira