Heilt lið réðst á dómara sem bjargaði sér á hlaupum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2011 23:30
Dómaratríó í Argentínu komst í hann krappan á dögunum þegar allt varð vitlaust í leik San Guillermo og Atletico Tostado í argentínsku 5. deildinni. Dómara leiksins varð á þau mistök að gefa röngum manni rautt spjald og hann þurfti í kjölfarið að forða sér á hlaupum undan leikmönnum Tostado sem réðust allir að honum. Það varð allt vitlaust þegar Atlético Tostado liðið fékk aukaspyrnu á miðju vallarins. Leikmaðurinn sem var brotið á var mjög ósáttur og sló til mótherja síns. Dómarinn sá það og fór í vasann til að finna rauða spjaldið en honum varð það á að sýna það röngum leikmanni. Sá sem fékk rauða spjaldið missti þá gjörsamlega stjórn á sér og í kjölfarið réðust allir samherjar hans á dómarann. Þjálfarar liðsins blönduðu sér síðan í málið en í stað þess að róa menn niður þá lögðu þeir leikmönnum sínum lið og dómaratríóið mátti ekki við margnum. Dómarinn ákvað því að forða sér af vellinum með aðstoðardómurunum með liðsmenn Atletico Tostado á eftir sér. Hann slapp ekki fyrr en hann stökk með hausinn á undan yfir hátt grindverk umhverfis völlinn. Þetta er ekki skemmtileg sjón en undir lokin er þetta þó orðið grátbroslegt og hér er vissulega hægt að segja að sjón sé sögu ríkari. Hægt er að sjá myndband af þessu með því að smella hér að ofan.
Fótbolti Mest lesið Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ „Dómararnir á HM eru ekki nógu góðir“ Romário segir frammistöðu Brasilíu sorglega Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Hetjurnar frá 1998 telja að Noregur geti orðið heimsmeistari Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Til Tottenham fyrir sautján milljarða Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fimmti stjóri Forest á einu ári Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Tuchel himinlifandi: „Dásamlegt að sjá leikmenn stolta að spila fyrir landið sitt“ Skera niður hjá stelpunum Frækinn sigur Englendinga á Azteca Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Ekki tapað fótboltaleik í heilt ár Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Mbappé: Héldu sennilega að við myndum mæta í smóking Skutu upp flugeldum til að trufla nætursvefn ensku leikmannanna Neitar því að leikmennirnir sínir hafi notað Viagra Segja hegðun Paragvæ til skammar Trump þakkar FIFA fyrir Sjá meira