Ísbirnir reglulega felldir á Svalbarða 6. ágúst 2011 22:00
Piltarnir fjórir sem sluppu lifandi frá grimmilegri árás hvítabjarnar á Svalbarða í gær þurftu allir að gangast undir skurðaðgerð vegna áverka á höfði. Um 3000 birnir halda til á Svalbarða og hafa að meðaltali þrír á ári verið felldir þegar fólki stafar hætta af þeim. Þrettán bresk ungmenni voru stödd í tjaldbúðum á Svalbarða þegar ísbjörn réðst á eitt tjaldið í gærmorgun. Þrír voru í tjaldinu, þar á meðal sautján ára piltur, Horatio Chapple, sem hugði á nám í læknisfræði, björninn náði að rífa hann á hol og drepa. Samkvæmt Sky fréttastofunni komu tveir af fararstjórunum þá að, björninn réðist á þá en annar þeirra náði að komast undan, sækja skotvopn og felldi síðan dýrið. Allir fjórir sem lifðu árásina af voru fluttir á spítala í Tromsö með alvarlega höfuðáverka. Þeir eru í stöðugu en alvarlegu ástandi. Jane Owen, sendiherra Bretlands í Noregi, sagði það hafa slegið sig hversu sterkir eftirlifendurnir voru, þrátt fyrir að vera slasaðir. „Þeir höfðu allir samskipti við mig, réttu upp þumalinn og sögðu: „Við komumst í gegnum þetta, við náum okkur." Ástand þeirra er alvarlegt en stöðugt og þeir hafa fengið mjög góða meðferð hérna. Þeir eru allir mjög hugrakkir." Um 2400 manns búa á Svalbarða og 3000 hvítabirnir. Sextán ár eru síðan hvítabjörn drap tvær manneskjur í tveimur aðskildum árásum, að sögn Magnus Andersen, vísindamanns hjá norsku Heimskautastofnuninni sem AP fréttastofan talaði við. Hann segir að á árunum 1993 til 2004 hafi þrjú dýr verið felld á ári að meðaltali þegar þau komust í návígi við fólk. Árásin í gær sé hins vegar sú alvarlegasta í manna minnum.
Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Sjá meira