Liðsauki lögreglu streymir til Lundúna Óli Tynes skrifar 9. ágúst 2011 11:25 Glæpagengi fara um rænandi og sruplandi.
David Cameron forsætisráðherra Bretlands hélt fund með COBRA nefndinni svokölluðu í morgun en hún er annars sjaldnast kölluð saman nema á stríðstímum þegar þjóðaröryggi er ógnað. Og forsætisráðherrann talaði tæpitungulaust við fréttamenn á eftir. Cameron sagði að óeirðaseggirnir skyldu ekki vera í neinum vafa um að þeir muni finna fyrir fullum þunga laganna. Hann sagði að liðsauki lögreglumanna frá öðrum héruðum streymdi nú til Lundúna. Síðastliðna nótt hefðu verið sexþúsund lögreglumenn á vakt í höfuðborginni en í kvöld yrðu þeir sextán þúsund. Þeir myndu einnig ganga fram af mun meiri hörku en hingaðtil. Forsætisráðherrann sagði einnig að breska þingið yrði kallað saman til aukafundar á fimmtudag, þar sem óeirðirnar yrðu eina málið á dagskrá. Óeirðaseggirnir hafa þegar valdið milljarðatjóni í Lundúnum. Mörg hús stóðu í björtu báli í nótt og miklar aðrar skemmdir unnar. Einnig virtust óeirðirnar vera að breiðast út því það kom einnig til átaka milli lögreglu og óeirðaseggja í Birmingham, Bristol og Liverpool. Löngu er ljóst að þetta eru ekki neinar mótmælaaðgerðir eins og lagt var upp með í byrjun. Á myndum frá Lundúnum má sjá grímuklædd þjófagengi hamast á rúðum verslana. Og þegar þeim tekst að brjóta sér leið inn er öllu stolið steini léttara. Lögreglan segir að rafrænir samskiptavefir hafi eitthvað verið notaðir til að safna saman liði til átaka. En nú eru fleiri komnir inn á samskiptavefi. Það er farið að safna saman fólki til þess að hjálpa björgunarsveitum við tiltektir eftir skemmdarverkin. Fólk er hvatt til að taka þátt í hreinsunum í sínum hverfum. Það hafa einnig birst myndir af einstaklingum eins og svörtu konunni sem bauð skrílnum byrgi fyrir framan verslun sem hann var að reyna að brjótast inní. Þetta eru almennir Lundúnabúar sem vilja endurheimta borgina sína úr höndum glæpamanna.
Mest lesið Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Erlent Níu í lífshættu eftir stunguárásina Erlent Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Ölvaður undir stýri með börn í bílnum Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Erlent Húsnæðismálin og staða Ríkisútvarpsins Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Fleiri fréttir Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre Sjá meira