Bubbi Morthens endurheimti þýfi fyrir Hugleik 21. júní 2011 11:46 Hugleikur Dagsson er afar ánægður með Bubba og þjófinn sem skilaði honum margra mánaða starfi. „
Bubbi skipaði glæpónunum að senda þetta upp í Efstaleiti," segir rithöfundurinn Hugleikur Dagsson, sem endurheimti efnið sem var á tölvunni hans, en henni var stolið fyrir skömmu. Þannig var það að tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens var í viðtali í þættinum Virkum morgnum á Rás 2 í gær. Þar hvatti hann „vini sína í undirheimunum" til þess að skila Hugleiki eigum hans. „Og þeir virðast bara hafa hlýtt honum," segir Hugleikur. Það var í morgun sem Gunna Dís, einn af stjórnendum þáttarins, kom í vinnuna. Þar beið hennar umslag sem innihélt harðann disk. Þjófurinn var búinn að afrita allt efnið á tölvu Hugleiks yfir á diskinn. „Það var langmikilvægast að fá þetta til baka. Ég geri nú ekki ráð fyrir að fá flakkarann eða tölvuna sjálfa til baka," segir Hugleikur sem er að vonum gríðarlega þakklátur Bubba fyrir að hafa hvatt þjófinn til þess að skila efninu. Gunna Dís afhenti Hugleiki diskinn í morgun. Spurður hvort Bubbi fái að birtast í einhverri teiknimyndasögunni hans Hugleiks að launum, svarar hann því til að Bubbi sé búinn að koma fram í sögunni um eineygða kisann. Meðal þess sem Hugleikur endurheimti var handrit að hryllingsmynd sem hann langar til þess að koma á koppinn. Því er óhætt að segja að sumrinu sé bjargað hjá teiknimyndahöfundinum. Hugleikur hefur þó ekki setið auðum höndum. Útgáfufélag hans, Ókeibæ-kur vinnur nú hörðum höndum að því að koma út ferðamannavísi fyrir þá sem festast í Vesturbæ Reykjavíkur með tryllta uppvakninga allt í kring. Þá er einnig von á lífstílsbók eftir Hildi Knútsdóttur, sem Hugleikur segir að sé einstaklega fyndin manneskja. „Þetta er allavega ein frumlegasta lífstílsbók sem ég hef lesið," segir hann um þennan unga og hæfileikaríka rithöfund sem er nýbúinn að senda frá sér skáldsöguna Sláttur.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Fleiri fréttir Fella niður bátsferðir en fjölga flugferðum Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Sjá meira