Leitað eftir hugmyndum um þróun Þingvalla 21. júní 2011 12:41 Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður, Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar og Ragna Árnadóttir , formaður dómnefndar.
Þingvallanefnd leitar eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins. Í tilkynningu segir að allir geti tekið þátt í hugmyndaleitinni sem stendur til 22. ágúst 2011 og verða veittar allt að fimm 200 þúsund króna viðurkenningar fyrir hugmyndir sem dómnefnd telur áhugaverðastar. „Álfheiður Ingadóttur formaður Þingvallanefndar, Ragna Árnadóttir formaður dómnefndar um hugmyndaleitina og Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður kynntu hugmyndaleitina á fundi með blaðamönnum í dag," segir ennfremur en við það tækifæri var opnað sérstakt svæði á vef þjóðgarðsins þar sem er að finna nánari lýsingu á hugmynda-leitinni auk upplýsinga um fyrirkomulag og leikreglur. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum skipar stóran sess í huga íslensku þjóðarinnar. Um hann gilda sérstök lög og hann nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar sem menningarminjar á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Unnið er að undirbúningi að tilnefningu Þingvalla sem náttúruminja og sem hluta af raðtilnefningu miðaldarminja (víkingatímans) á heimsminjaskrána. Ragna Árnadóttir, formaður dómnefndar, segir mikilvægt að almenningur taki þátt í að skilgreina hvaða hlutverki Þingvellir eigi að gegna í lífi okkar og samfélagi. „Við getum horft stolt til Þingvalla, einstakrar náttúru, sögunnar og menningarlegs hlutverks. Við skulum þó ekki veigra okkur við að spyrja: Erum við sátt við Þingvelli eins og þeir eru í dag? Má eitthvað betur fara? Hvað viljum við halda í og hvað má bæta? Hugmyndaleitin er gott tækifæri til að láta hugann reika og kynnast Þingvöllum frá nýjum sjónarhóli. Ræðum þetta í kaffiboðum, á heimilinu, vinnustaðnum og á mannamótum í sumar," segir Ragna. Skilafrestur til 22. ágústÞeir sem taka þátt í leitinni eiga að skila hugmyndum sínum í Alþingishúsið merktum: Hugmyndaleit Alþingi - Skáli Kirkjustræti 150 Reykjavík Hugmyndum á að skila á venjulegum hvítum pappír á fleti sem samsvarar að hámarki 4 síðum af stærð A4 og eru þátttakendur hvattir til að lýsa hugmyndum sínum bæði í máli og myndum. Auðkenna á hugmyndirnar með númeri en nafn höfundar á að fylgja með í sérstöku umslagi til þess að nafnleyndar sé gætt. Hver þátttakandi getur skilað inn eins mörgum hugmyndum og hann vill en þá þarf að búa um hverja fyrir sig eins og þær kæmu hver frá sínum þátttakanda. Frestur til að skila inn hugmyndum er til klukkan 16:00 mánudaginn 22. ágúst 2011 og þurfa póstsendar hugmyndir að vera póststimplaðar í síðasta lagi þann dag.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fleiri fréttir Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Sjá meira