Tim Howard brjálaður út í mótshaldara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. júní 2011 20:30 Tim Howard var heldur niðurlútur eftir úrslitaleikinn í nótt. Nordic Photos / AFP
Bandaríski markvörðurinn Tim Howard blótaði mótshöldurum Gold Cup-mótsins í sand og ösku fyrir að láta verðlaunaafhendinguna eftir úrslitaleik mótsins í nótt fara alla fram á spænsku. Mótið var haldið í Bandaríkjunum en úrslitaleikurinn fór fram á hinum sögufræga Rose Bowl-leikvangi í Kaliforníu-fylki. Heimamenn mættu Mexíkóum í úrslitaleiknum en langflestir áhorfenda voru á bandi þeirra síðarnefndu. Mexíkó vann leikinn, 4-2, og var verðlaunaafhendingunni stjórnað af þekktum mexíkóskum sjónvarpsmanni sem talaði einungis á spænsku, nema þegar að lið Bandaríkjanna tók við silfurverðlaunum sínum. Concacaf, knattspyrnusamband mið- og norður-Ameríku, sá um skipulagningu mótsins og Howard lét forráðamenn sambandsins heyra það eftir leikinn. „Concacaf ætti að skammast sín. Þetta er algjör svívirðing að verðlaunaafhendingin fór fram á spænsku. Ég er handviss um að ef leikurinn hefði farið fram í Mexíkóborg og við hefðum unnið hefði athöfnin ekki farið öll fram á ensku,“ sagði Howard við fjölmiðla eftir leikinn. Talið er að um 90 prósent áhorfenda á leiknum hafi verið stuðningsmenn mexíkóska landsliðsins. Margir stuðningsmenn bandaríska liðsins kvörtuðu yfir því bæði fyrir leik og eftir hann að hafa ekki fengið tækifæri til að kaupa miða á leikinn.
Fótbolti Mest lesið Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Sjá meira