Mikill uppgangur í hvít-rússneskum fótbolta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. júní 2011 13:30 Sivakov í umspilinu gegn Ítalíu Mynd/Getty Images
Íslenska U-21 landsliðið mætir því hvít-rússneska í opnunarleik Evrópumótsins í Árósum í dag. Árangur yngri landsliða, A-landsliðsins og Bate Borisov í Evrópukeppnini á undanförnum árum tala sínu máli. Íslensku strákarnir eiga erfiðan leik fyrir höndum. U21-landslið Hvít-Rússa hafnaði í öðru sæti í sínum riðli í undankeppninni. Liðið lauk leik með jafnmörg stig og Skotland en lakara markahlutfall. Eina tap liðsins var 1-0 gegn Skotum en markið kom á þriðju mínútu í uppbótartíma. Íslenska landsliðið sló út það skoska í umspilinu eins og allir vita. Hvít-Rússar mættu hins vegar Ítölum í umspilinu. Útlitið var svart eftir 2-0 tap í fyrri leiknum á Ítalíu. Hvít-Rússunum tókst hins vegar hið ómögulega og unnu Ítali 3-0 í síðari leiknum eftir framlengingu. Liðið gerði svo 1-1 jafntefli gegn Spánverjum í æfingaleik í vor en Spánverjar þykja líklegir til afreka á mótinu í ár. Framherjinn Vladimir Yurchenko skoraði tvö af mörkum liðsins í sigrinum gegn Ítölum. Hvít-Rússar urðu fyrir miklu áfalli fyrir skömmu þegar Yurchenko varð fyrir því óláni að slíta krossbönd í æfingaleik. Fjarvera hans gæti reynst Hvít-Rússum dýr. Þetta er annað skiptið í röð sem U21 lið Hvít-Rússa kemst í lokakeppni Evrópumótsins. Á mótinu fyrir tveimur árum í Svíþjóð náðu þeir aðeins í eitt stig. Þeir gerðu jafntefli við Serba en töpuðu leikjum sínum gegn Ítalíu og Svíþjóð. Þjálfari liðsins Georgi Kondratiev er þó reynslunni ríkari. Skærasta stjarna liðsins er líklega fyrirliðinn Mikhail Sivakov sem er einn tveggja í hópnum sem spilar utan heimalandsnis. Sivakov er samningsbundinn Cagliari á Ítalíu en var á láni hjá pólsku meisturunum Wisla Kraków í vetur. Mikill uppgangur hefur verið í knattspyrnumálum í Hvíta-Rússlandi undanfarin ár. A-landslið þjóðarinnar situr í 53. sæti heimslistans. Liðið hefur staðið sig vel í undankeppni Evrópumótsins í Póllandi og Úkraínu 2012. Það situr í 2. sæti riðils síns og hefur aðeins tapað einum leik. Skærasta stjarna A-landsliðsins er Alexander Hleb leikmaður Barcelona. Þá er íslenskum knattspyrnuáhugamönnum eflaust í fersku minni útreið FH gegn Bate Borisov í undankeppni Meistaradeildar Evrópu síðastliðið sumar. Bate sigraði í einvíginu samanlagt 6-1 en sex leikmenn U21 liðsins leika með liðinu. Árið 2008 urðu Valsmenn fyrir barðinu á Bate í sömu keppni. Tímabilið 2008-2009 komst Bate í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið gerði meðal annars tvívegis jafntefli við Juventus frá Ítalíu. Leikur Íslands og Hvíta-Rússlands fer fram í Árósum í dag og hefst klukkan 16. Fylgst verður með gangi mála á Boltavakt Vísis.
Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Íslenski boltinn Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Rekinn rétt fyrir HM Fótbolti Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Fleiri fréttir Fram - Keflavík | Bæði leita fyrsta sigursins Breiðablik - ÍA | Spennandi slagur í Kópavogi KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Valur - ÍBV | Gera fyrrum félagar Hermanns honum skráveifu? Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Sjá meira