Alfreð: Frammistaða mín döpur Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 14. júní 2011 19:52
Alfreð Finnbogason náði sér ekki á strik með íslenska U-21 landsliðinu gegn Sviss í dag, frekar en margir aðrir í íslenska liðinu. Leikurinn tapaðist, 2-0, og er Ísland enn án stiga eftir fyrstu tvo leikina í A-riðli á EM í Danmörku. Alfreð var í byrjunarliðinu í dag í stað Jóhanns Bergs Guðmundssonar sem á við meiðsli að stríða. Hann var svo tekinn af velli í hálfleik. „Við vorum ekki á tánum sem sést best á því að þeir skoruðu strax á fyrstu mínútu leiksins. Það voru allir á hælunum og því miður get ég bara borið ábyrgð á minni frammistöðu og hún var mjög döpur í dag. Ég þarf að skoða mín mál," sagði Alfreð. „Þeir voru fljótari í öll návígi, í alla seinni bolta og tóku alla skallabolta. Ef þú ert ekki yfir í þeirri baráttu áttu mjög lítinn séns á að vinna fótboltaleik." „Staðreynd málsins er að þeir voru bara betri en við í dag. Þeir unnu sannfærandi sigur og við fengum ekkert nema 1-2 opin færi. Á meðan stjórna þeir leiknum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og er það bara okkur að kenna. Við vorum daprir og við getum ekki falið það." „Það er gríðarlega svekkjandi að við skulum ekki enn hafa skorað í keppninni. Sérstaklega fyrir mig sem sóknarmann að vera ekki búinn að koma mér í nein almennileg færi eða búa eitthvað til. Það eru margir lykilleikmenn sem voru að spila undir getu og ég verð bara að taka ábyrgð á minni frammistöðu sem var alls ekki góð."
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands