Arnór: Betra að spila fyrir fullum velli Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 18. júní 2011 11:00 Arnór er hér fyrir miðjum hópi íslensku U-21 landsliðsmannanna á æfingu liðsins í vikunni. Mynd/Anton
Arnór Smárason segir að danska liðið sé vel spilandi og með góða leikmenn sem þurfi að hafa gætur á. Hann segir þó að Íslendingar muni mæta dýrvitlausir til leiks. Ísland mætir Dönum hér í Álaborg í kvöld í lokaumferð riðlakeppninnar. Þrátt fyrir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu á Ísland enn möguleika að komast áfram - vinni strákarnir Dani með því að skora minnst fjögur mörk og vinna með minnst þriggja marka mun auk þess sem þeir verða að treysta á að Sviss vinni Hvíta-Rússland. Arnór Smárason var á blaðamannafundi íslenska liðsins í gær og var spurður út í styrkleika danska liðsins. „Þeir eru með sókndjarfa bakverði og kantmenn og það fer mikið af þeirra spili í gegnum þá," sagði Arnór. „Christian Eriksen er svo eins og allir vita mjög góður leikmaður og þurfum við að hafa gætur á honum." „En ég held að það sem skipti fyrst og fremst máli er hversu hungraðir við erum. Við viljum gera miklu betur en viðhöfum sýnt hingað til. Ég held að við munum sjá dýrvitlausa íslenska leikmenn í leiknum." Arnór leikur með danska liðinu Esbjerg og segir að það geti myndast góð stemning þegar Dani fjölmenni á völlinn. „Það má búast við miklu fjöri og fullum velli af áhorfendum enda þurfa Danir líka að vinna leikinn. Það er alltaf mikil og góð stemning í kringum danska leikmenn - þeir fá sér pylsu og öllara og eru skemmtilegir. Ég hlakka mikið til leiksins." Hann segir betra að spila fyrir fullum velli, þó svo að flestir séu á bandi andstæðingsins. „Það er alltaf skemmtilegast að spila fyrir sem flesta," sagði Arnór sem hefur sjálfur spilað tvívegis á Álaborgarvelli með sínu félagsliði - og unnið í bæði skiptin.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira