Eyjólfur: Strákarnir eiga eftir að koma A-liðinu á stórmót Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 19. júní 2011 09:00
Eyjólfur Sverrisson segir það sárt að hugsa til þess að liðið sé nú úr leik á EM í Danmörku, nú fyrst þegar að liðið er nýbúið að ná sér á strik. Eyjólfur fékk skamman tíma til að undirbúa liðið sitt fyrir mótið og segir að það sé eitthvað sem megi læra af. Ísland vann í gær 3-1 sigur á Dönum sem dugði þó ekki til að komast áfram í undanúrslit mótsins. „Þetta var stórkostlegur leikur hjá strákunum og þeir sýndu sitt rétta andlit eins og við töluðum um að þeir ætluðu að gera sér í þessum leik,“ sagði Eyjólfur í löngu viðtali við fjölmiðla eftir leik. Viðtalið má sjá allt hér fyrir ofan. „Við vorum að spila vel, verjast vel og fá færi. Við vorum að spila eins og við vorum að gera í undankeppninni. Það gekk virkilega vel í dag og þetta var sætur sigur. Það var svekkjandi að ná ekki síðasta markinu sem þurfti til.“ „Margir gerðu nú grín að því að við þyrftum „bara“ að vinna Danina 4-1. Við vorum svo alls ekki langt frá því og er ég stoltur af því að strákarnir trúðu á þetta. Maður verður alltaf að sjá drauminn.“ Eyjólfur var rekinn upp í stúku í leiknum fyrir að mótmæla dómgæslunni. „Hlutirnir hafa ekki verið að detta með litla Íslandi í þessari keppni og við höfum þurft að glíma við mikið mótlæti. Þá reynir maður að verja sjálfan sig og sína leikmenn. Maður lætur ekki traðka á sér.“ „Eini dapri hálfleikurinn sem við spiluðum í mótinu var gegn Sviss. Seinni hálfleikurinn var svo sem allt í lagi. Við erum nú búnir að vera saman í nokkra daga og æfa vel - kannski hefðum við þurft að byrja mótið núna. Það er kannski það sem er sárast í þessu og við getum lært af.“ „En þessir strákar eiga eftir að ná enn lengra og koma A-liðinu á stórmót. Þá eigum við eftir að skemmta okkur konunglega.“ Eyjólfur verður áfram þjálfari U-21 liðs karla. „Ég hef skuldbundið mig fyrir næstu keppni og verður það sama upp á teningnum þá. Við ætlum okkur langt og eru spennandi tímar fram undan.“ „Ég er reyndar klökkur yfir því að hafa starfað með þessum strákum sem hafa sýnt að þeir eru snillingar og eiga eftir að verða enn þá betri.“
Mest lesið Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport Þolinmæðin á þrotum: „Gerist aldrei neitt“ Sport Sagðar hafa hætt saman en mætast í úrslitaleik í kvöld Sport „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Fótbolti „Day of fun“ fól ekki í sér áfengi hjá Jóni Erik Sport Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Sport LaMelo Ball lenti í bílslysi Körfubolti Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Enski boltinn Hundur Lindsey Vonn dó daginn eftir að hún fótbrotnaði á ÓL Sport Smyglaði sér inn í Ólympíuþorpið til að styðja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Reddaði Blikum en þurfti svo að vera í stúkunni Frekur Gordon minnti á Shearer og bætti markamet hans Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá „Ef við viljum fá Haaland verðum við að fá Messi aftur“ Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum Fabrégas reif í treyju leikmanns en Allegri fékk rautt spjald „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Atletico Madrid missti niður tveggja marka forskot í Belgíu Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Gamli Valsarinn í stuði þegar Bodö skellti Inter í Meistaradeildinni Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Elísa skoraði glæsimark hjá Fanneyju en Blikar töpuðu 11-1 samanlagt Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú „Af hverju ætti hann að vera að setja treyjuna yfir munninn?“ Sverrir frá Eyjum til FH Benítez valtur í sessi og gamall lærisveinn hans gæti stýrt Sverri Sparar ekki stóru orðin í garð Íslendingsins sem gæti farið alla leið í boltanum Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Dansinn hjá Vinicius, draumaleikur Doué og fimmfaldur fögnuður Valdimar fer ekki til Mexíkó Skýtur skökku við: Beindi spjótum sínum að Mourinho Segist ekki hafa kallað Vinicius apa og Benfica bakkar hann upp „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Draumabyrjun hjá Dortmund eftir frestun PSG sneri skelfilegri stöðu í Mónakó Madrídingar sóttu sigur eftir mikil læti í Lissabon Saka verður sá launahæsti Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Fyrrum Valsarinn vann Inter, Gordon setti fernu og Madrídingar molnuðu