Sörensen: Stundum þarf að treysta á heppnina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. júní 2011 22:11
Thomas Sörensen markvörður Dana var hæstánægður með stigin þrjú í baráttuleik. „Það er aldrei auðvelt að spila hér. Þetta er í þriðja sinn sem ég kem hingað og það er alltaf mikil barátta. Svoleiðis var það í dag. Við fengum betri færi en þeir áttu góðan kafla síðustu 20 mínúturnar í fyrri hálfleik og byrjun þess seinni. Hefðu þeir skorað þá hefði þetta orðið erfitt." Íslendingar komust í góð færi undir lok fyrri hálfleiks en Sörensen sagði að það hefði samt ekki verið farið að fara um hann. „Færið kom eftir hornspyrnu að mig minnir. Með smá heppni hefði getað verið íslenskur leikmaður til að koma boltanum í markið en þannig er fótboltinn. Stundum þarftu að treysta á heppnina og við gerðum það á þessum kafla. Við fengum það sem við ætluðum okkur. Þrjú stig og það er allt sem við gátum óskað okkur." Sörensen segir ákveðin kynslóðaskipti í danska liðinu líkt og því íslenska. „Það er erfitt að leggja mat á leikinn í dag enda völlurinn lélegur og vallaraðstæður erfiðar. Heilt yfir er mikið af ungum leikmönnum að koma upp líkt og í íslenska liðinu. Þeir vaxa með reynslunni og vonandi getum við komið sterkari til leiks í haust." Sörensen telur Dani ennþá eiga fína möguleika á að komast í lokakeppnina. „Já, við eigum tvo heimaleiki og einn útileik. Þrír sigrar og þá erum við komnir áfram. Ef við getum haldið uppteknum hætti í haust, hví ekki?"
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Hildur til Newcastle Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands