Erlent

Strauss-Kahn fyrir rétt á morgun

Strauss-Kahn leiddur í réttarsal.
Strauss-Kahn leiddur í réttarsal.
Réttarhöld yfir Dominique Strauss-Kahn hefjast á morgun í New York, en þessi fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hefur verið ákærður fyrir að reyna að nauðga 32 ára gamalli hótelþernu á hótelherbergi sínu í síðasta mánuði.

Lögmaður Strauss-Kahn segir í viðtali við Reuters að skjólstæðingur hans muni lýsa yfir sakleysi sínu í réttarhöldunum á morgun, sem talið er að muni teygjast verulega á langinn.

Strauss-Kahn dúsir nú í stofufangelsi eftir að hafa borgað himinháa tryggingu fyrir frelsi sitt. Fyrstu dagana eftir að hann var handtekinn var vistaður í fangelsinu á Rikers-eyju.

Strauss-Kahn hefur hætt störfum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna málsins en þau Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, og seðlabankastjóri Mexíkó, Agustin Carstens, sækjast eftir framkvæmdastjórastöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×