Erlent

Heimsins yngsti atvinnumálari

Hin fjögurra ára gamla Aelita Andre dregur nú að sér aðdáendur með sinni fyrstu málverkasýningu en verk hennar eru nú til sýnis í Agora gallerýinu í New York. Aelita er talin vera heimsins yngsti atvinnumálari og hefur henni þegar verið líkt við heimsfræga listamenn á borð við Pablo Picasso og Jackson Pollock.



Aelita, sem var uppgötvuð þegar hún var aðeins tveggja ára gömul, hefur nú þegar selt verk fyrir háar fjárhæðir en í fyrra pungaði listasafnari frá Hong Kong út tæpum þremur milljónum íslenskra króna fyrir eitt verka hennar. Verkin eru flokkuð sem abstrakt expressjónismi, en þó þykir glitta í súrrealisma í notkun hennar á aukahlutum í verkum sínum.



Í meðfylgjandi myndbroti má sjá listamanninn að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×