Skúli Jón þakklátur verkfalli flugvirkjanna Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. júní 2011 09:30
Strákarnir í U-21 landsliði Íslands voru mættir snemma út í Leifsstöð fyrir ferðalagið til Danmerkur í dag. Evrópumeistaramótið hefst þar á laugardaginn kemur. Reyndar var hópurinn aðeins seinna á ferðinni en áætlað var vegna verkfallsaðgerða flugvirkja Icelandair í morgun. Flugi liðsins til Kaupmannahafnar seinkaði um rúmar tvær klukkustundir. Skúli Jón Friðgeirsson, landsliðsmaður og leikmaður KR, var að spila með sínu liði í Pepsi-deildinni í gær og því þakklátur fyrir að fá að sofa aðeins lengur í morgun. „Það var vitað við myndum fara snemma út á völl daginn eftir þennan leik en það kom þessi seinkun. Ég er því hálfpartinn útsofinn í dag,“ sagði Skúli Jón við Vísi en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. Hann var því bara nokkuð sáttur við verkfall flugvirkjanna. „Já, það var ágætt að fá að sofa í tvo tíma til viðbótar. Ég náði því að sofa í fjóra tíma í stað tveggja.“ „Skrokkurinn er fínn eins og er - ég held að harðsperrur og annað sé ekki komið enn vegna þess að svefninn var svo stuttur. Við sjáum til hvernig hann verður seinni partinn á æfingunni.“ KR-ingar unnu 2-0 sigur á FH í gær og sitja á toppi Pepsi-deildarinnar, enn taplausir eftir sjö umferðir. Skúli Jón segir að það sé góð tilfinning að fara þannig til Danmerkur. „Það var það sem ætluðum að gera. Við erum taplausir og þetta er eins gott og þetta getur orðið.“ Hann segir að leikmenn U-21 liðsins reyni að halda sér á jörðinni þó svo að mótið sé nú að bresta á eftir langa bið. „Við reynum það alla vega. Við vitum lítið um hin liðin en við þykjumst vera klárir. Þetta verður örugglega glæsilegt.“
Mest lesið Klúðraði gullgreininni sinni: „Ég er enn í áfalli“ Sport „Enginn vildi að ég myndi vinna“ Sport „Ég hélt ég myndi deyja“ Enski boltinn Fótboltaþjálfari og þrjú börn hans létust í jólafríinu Fótbolti Jokic lá þjáður eftir og tímabilið í hættu Körfubolti Hetjuleg barátta dugði ekki gegn heimsmeisturunum Handbolti Dagskráin: Mini Doc stýrir Doczone, Lokasóknin og HM í pílu Sport Senda samúðarkveðjur eftir að nánir vinir Joshua létust í banaslysinu Sport Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Enski boltinn „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Fróðari menn segja að maður eigi ekki að láta tilfinningarnar ráða“ Fótboltaþjálfari og þrjú börn hans létust í jólafríinu „Ég hélt ég myndi deyja“ Nottingham Forest vill fá að heyra samtöl dómaranna Ekki góð ferð til Rómarborgar í kvöld Heimamenn í ham og El Kaabi skoraði aftur með hjólhestaspyrnu Sarri gekkst undir hjartaaðgerð Vildi ekki láta undan pressu frá fjölmiðlamönnum Hvíldu Mo Salah en unnu samt riðilinn Beint frá Blikum til Boston í bandarísku deildinni Man Utd samdi við fyrrum liðsfélaga Glódísar Perlu hjá Bayern Gefur í skyn að Arsenal opni veskið í janúar „Einn mesti hugsuðurinn í boltanum“ Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Hneysklaður á ósönnum orðrómum Enn kvarnast úr liði Blika Jafnt í stórleiknum Martínez skaut Inter á toppinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Sjá meira