Fótbolti

Vítaspyrnan hjá Alexander slær í gegn á Youtube

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Alexander Magnússon leikmaður Grindavíkur hefur vakið gríðarlega athygli fyrir vítaspyrnuna sem hann tók í 4-1 sigri liðsins gegn Þór í Pepsideild karla þann 30. maí s.l. Þar sýndi hægri bakvörðurinn snilldartilþrif þegar  hann skoraði með frekar óhefðbundnum hætti úr vítinu og myndband frá Stöð 2 sport frá atvikinu hefur vakið gríðarlega athygli á Youtube.

Vítaspyrnan er í fjórða sæti yfir þau íþróttamyndbönd sem flestir hafa skoðað en rúmlega 220.000 hafa skoðað vítaspyrnuna. LeBron James er efstu á þessum lista en um 600.000 hafa skoðað myndband frá fréttamannafundi Miami Heat.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×