Erlent

Óskalisti dauðvona stúlku vekur mikla athygli

Eitt af atriðunum á lista Alice var að fá fallega mynd tekna af sér með hundinum sínum.
Eitt af atriðunum á lista Alice var að fá fallega mynd tekna af sér með hundinum sínum.
15 ára gömul ensk stúlka sem greindist með ólæknandi krabbamein fór að ráðum móður sinnar og bjó til lista yfir allt það sem hún vildi gera áður en hún deyr. Listann lét hún á bloggsíðu sem hún stofnaði fyrir fjölskyldu og vini síðastliðinn mánudag en ekki leið á löngu áður en bloggið var búið að fljúga fram og til baka um netheiminn og skyndilega var Alice Pyne orðin eitt margumtalaðasta efnið á netinu.

Á lista Alice má finna ýmislegt, allt frá þeirri ósk hennar að fá að halda bíókvöld með bestu vinum sínum, að þeim draumi hennar að gerast höfrungaþjálfari, en hún leyfði sér að skrifa einnig niður þau markmið sem hún veit að ekki er mögulegt fyrir hana að ná.

Margir þeirra sem heimsóttu bloggsíðuna hafa viljað hjálpa henni með peningagjöfum en Alice afþakkar allt slíkt. Hún biður hinsvegar fólk að athuga í staðinn atriði númer tvö á listanum hennar, en þar segist hún vilja fá alla til að skrá sjálfa sig í beinmergsgjöf.

Nú þegar hefur ósk hennar borið árangur, en margir hafa sent Alice skilaboð þess efnis að þeir séu nú orðnir beinmergsgjafar og það sé sögunni hennar að þakka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×