Mörg lömb blind eftir öskuna Hugrún Halldórsdóttir skrifar 29. maí 2011 19:30
Hátt í tuttugu lömb á einum og sama sveitabænum urðu að heimalingum við eldgosið í Grímsvötnum. Þau eru mörg hver blind eftir ösku og þurfa á mikilli umönnun að halda. Sauðféð á bænum Kálfafelli eitt, rétt austan við Kirkjubæjarklaustur, fór illa út úr gosinu. Margar skepnur eru blindar eftir að hafa fengið ösku í augun og einhverjar urðu úti með þeim afleiðingum að átján lömb misstu eða týndu mæðrum sínum. Heimalingarnir fúlsa við öllu nema volgri mjólk og þurfa á henni að halda fjórum til fimm sinnum á dag. Þetta þýðir að bændurnir Hafdís Huld Björgvinsdóttir og Stefán Björnsson metta um sjötíu til níutíu litla munna á hverjum degi. „Sum eru náttúrulega blind en önnur ekki. En það er svona erfitt að vita hvernig þeim reiðir af," segir Hafdís. Hún býst við að heimalingarnir þurfi á mjólkurgjöf að halda þar til um miðjan júní. Til að standa undir eftirspurn er mjólk fengin frá næstu bæjum en einnig notast þau við mjólkurduft. „Það er svolítið svona strembið að þurfa að gefa þessu öllulen það á reyndar að panta svona fötu með svona túttum á, þá hellir maður í og kennir þeim að drekka þannig," segir Hafdís. Þó svo að líkurnar væru ekki heimalingunum í hag fækkaði í hópnum þegar fréttastofa var í heimsókn, en tvö lömb fundu móður sína rétt eftir að hafa þegið vænan skammt af mjólk frá bændunum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira