Fjöldi stúlkna gengur til liðs við nýnazista í Þýskalandi 4. maí 2011 07:15
Á undanförnum árum hefur fjöldi stúlkna sem ganga til liðs við nýnazista í Þýskalandi tvöfaldast. Þetta kom fram í viðtali í morgunþætti danska ríkisútvarpsins við blaðamanninn Andrea Röpke en hann hefur rannsakað nýnazistahreyfinguna í Þýskalandi allt frá því á níunda áratug síðustu aldar. Röpke segir að fyrir nokkrum árum hafi stúlkur verið um 10% af nýnazistum í Þýskalandi en nú sé þetta hlutfall orðið 20% eða tvöfalt hærra. Á sama tímabili hefur ofbeldi hjá þýskum nýnazistum aukist verulega en það virðist ekki hafa haft áhrif á straum stúlkna í raðir þeirra. Raunar segir Röpke að stúlkurnar taki álíka mikinn þátt í ofbeldinu og karlarnir. Stúlkur sem ganga til liðs við nýnazista sýna að þær séu meðlimir með ýmsum hætti, þar á meðal að ganga með rauð og svört hárbönd eða bera Þórskross um hálsinn. Margar þessara stúlkna eru þó fljótar að yfirgefa nýnazistana. Ekki af því þær hafi áhyggjur af ofbeldinu og útlendingahatrinu heldur vegna þess að samkvæmt hugmyndafræði nýnazistanna er þeirra staður á heimilinu þar sem þær eiga að stunda hússtörfin og sjá um barnauppeldið. Á slíku hafa þær engan áhuga.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira