Erlent

Umkringja úthverfi í Damaskus

MYND/AP
Mikil skothríð hefur heyrst síðustu tímana í úthverfi Damaskus í Sýrlandi en talsmenn mannréttindasamtaka í landinu segja að herinn hafi umkringt hverfið.

Þá halda aðgerðir hersins áfram í borginni Homs en þar hafa hermenn og mótmælendur tekist á síðustu daga. Í gær létust nokkrir í borginni, þar á meðal 12 ára gamall drengur. Erlendum blaðamönnum hefur ekki verið hleypt inn í Sýrland frá því mótmælin gegn ríkisstjórninni hófust og því hefur verið erfitt að fá hlutlausar fregnir af stöðu mála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×