Látlausar sprengingar og háar eldtungur í Aþenu Óli Tynes skrifar 9. maí 2011 19:15 Aþena.
Færeyski verksmiðjutogarinn Aþena logar stafnanna á milli í höfninni í Runavík í Færeyjum. Ekki er hægt að hefja slökkvistarf vegna mikilla sprenginga í skipinu. Hálfíslensk kona sem býr í Runavík segir að fólk sem býr næst höfninni hafi verið flutt á brott. Togarinn Athena er tæp 8000 tonn og hin mesta óhappafleyta. Þetta er í þriðja skipti sem í honum verður stórbruni. Íbúar í Runavík eru um 4000 talsins. Um 1500 þeirra, sem búa næst höfninni voru fluttir á brott frá heimilum sínum í nótt þegar eitraðan reyk lagði yfir þann hluta bæjarins. Auk þess urðu um borð miklar sprengingar og jafnvel talin hætta á að skipið spryngi í loft upp. Athena var einmitt til viðgerðar í Runavik vegna eldsvoða á síðasta ári. Sigrid Dalskard sem er hálfíslensk, býr í Runavik. Hún segir að skipið logi stafnanna á milli. Það voru aðeins þrír menn um borð þegar eldurinn kom upp og þeir komust klakklaust í landi. Hinsvegar er talið að togarinn sé nú þegar gjörónýtur. Eldtungurnar standa marga metra í loft upp og sprengingarnar eru látlausar. Gera má ráð fyrir að hann eigi eftir að brenna marga daga til viðbótar. Hann hefur því væntanlega farið í sína síðustu veiðiferð. Ekki er á þessari stundu vitað hvernig eldurinn kviknaði. Runavik er um 11 kílómetra norðan við Þórshöfn í Færeyjum. Bærinn er á suðurhluta Austureyjar. Höfnin var upphaflega einkum notuð af fiskiskipum. Nú er þar einnig lykilbirgðastöð fyrir olíuvinnslu í Norðursjó og umskipunarhöfn fyrir vöruflutninga til og frá Evrópu. Skipið Athena var smíðað árið 1992 og er í eigu útgerðarfélagsins Thor í Færeyjum. Thor gerir út fjölmörg skip. Bæði til að þjónustu við olíuiðnaðinn og til fiskveiða um öll heimsins höf. Athena er einn stærsti togari Færeyinga.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Fleiri fréttir Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Sjá meira