Naktir í ræktinni: Fjórir í fyrsta tímanum 22. apríl 2011 22:00 Eigandi stöðvarinnar er enginn strípalingur en fannst þetta góð viðskiptahugmynd
Eigendandi líkamsræktarstöðvar í Baskalandi, á Norður-Spáni, hefur farið heldur óhefðbundna leið til að reyna að ná til nýrra viðskiptavina í kreppunni. Á líkamsræktarstöðinni Easy Gym í Arrigorriaga er nú hægt að fara nakinn í ræktina. „Ég er sjálf ekki strípalingur, en mér finnst þetta samt ekkert tiltökumál. Þetta frumkvæði snýst bara um að græða peninga," segir Merche Laesca, eigandi Easy Gym í samtali við BBC. Laesca vann heimavinnuna áður en hún ákvað að fara þessa leið, en hún komst að því að í nágrenninu eru tvær sundlaugar þar sem fólki býðst mánaðarlega að fara nakið í laugina, og njóta þessir sérstöku nektartímar mikilla vinsælda. Þá eru minnst tólf strendur á svæði Baska þar sem fólk hittist nakið, fer í sólbað og spilar á spil. Ofan á allt saman er síðan árlegt fjöldahlaup um ströndina í borginni Sopelana. Laesca var því handviss um að hún hefði þarna fundið hið fullkomna viðskiptatækifæri.Þarna situr fólkið á handklæðum, sem grípa svitann og koma í veg fyrir að fólk renniHún varð því fyrir nokkrum vonbrigðum þegar aðeins fjórir mættu í fyrsta tímann. „Þeim sem mættu fannst þetta samt alveg frábært," segir hún. Frá og með næsta mánuði verður Easy Gym opið seinni hluta laugardags og allan sunnudaginn sérstaklega fyrir þá sem vilja æfa naktir. Eigandi hefðbundinnar líkamsræktarstöðvar segir í samtali við BBC, af þessu tilefni, að honum finnist fátt óhreinlegra en nakið fólk í tækjasalnum. „Þegar þú ert að æfa fer svitinn í fötin þín. Hvert fer svitinn ef þú ert nakinn? Á tækin? Á gólfið? Á fólkið sem er að æfa næst þér?," spyr hann. Laseca hefur þó séð fyrir þessu og býður fólki handklæði til að setja á tækin. Þannig er líka komið í veg fyrir að fólk renni til. Tíminn einn mun leiða í ljós hvort viðskiptin glæðist hjá Easy Gym. Ljóst er að framtakið hefur vakið mikla athygli og þegar hefur jógakennari haft samband við Laseca og boðist til að kenna hinum nöktu jóga.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira