Guðfríður Lilja Grétarsdóttir snýr aftur á þing Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. mars 2011 11:57 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir formaður þingflokkks Vinstri grænna snýr aftur á þing í byrjun apríl. Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafa látið af öllum trúnaðarstörfum fyrir þingflokk Vinstri grænna og sitja ekki lengur í nefndum í umboði flokksins. Þrír þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna vissu af úrsögn Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasonar úr þingflokki Vinstri grænna kvöldið áður en þingflokknum var tilkynnt um úrsögnina. Þetta fullyrðir Morgunblaðið í dag. Í umfjöllun um úrsögnina í Morgunblaðinu í dag segir, að fljótlega eftir að Atli og Lilja höfðu tilkynnt þingflokknum úrsögn sína hafði starfandi formaður þingflokks VG samband við yfirstjórn Alþingis og tilkynnti að þau Atli og Lilja myndu hætta nefndarstörfum í þingnefndum á vegum VG. Þau sitja í fimm nefndum og Lilja hefur gegnt formennsku í viðskiptanefnd, þar sem Atli situr einnig, og Atli hefur gegnt formennsku í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður gengið frá nýjum fulltrúum þingflokksins í nefndirnar á þingflokksfundi eftir hádegi. Þriðji flokkurinn í ríkisstjórn ólíkleg niðurstaða að mati þingmanna Óvíst er hvaða þýðingu þetta hefur verið stöðu þingflokksins og ríkisstjórnarsamstarfið. Nú er sama staða uppi og þegar fjárlögin voru samþykkt, en þau náðust í gegn með aðeins þriggja atkvæða meirihluta. Ríkisstjórnin treystir nú á stuðning þrjátíu og þriggja þingmanna, en Jóhanna Sigurðardóttir útilokaði ekki í gær að fenginn yrði þriðji flokkurinn að borðinu til að styrkja ríkisstjórnarsamstarfið. Þingmenn Vinstri grænna sem fréttastofa hefur rætt við telja þetta þó mjög ólíklegt. Úrsögn Atla og Lilju hafi þannig ekki komið mikið á óvart, uppi sé svipuð staða og þegar fjárlögin voru afgreidd og líklega verði keyrt á þrjátíu og þriggja þingmanna meirihluta. Í þessu samhengi hafa einhverjir nefnt að einstök mál verði ríkisstjórninni erfið, eins og stjórnlagaráðsmálið, en tveir þingmenn Samfylkingarinnar hafa sagt að þeir muni ekki styðja málið. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna, áður en hún tók sér barneignarleyfi, snýr senn aftur á þing og er talað um apríl í því samhengi, en Árni Þór Sigurðsson hefur gegnt formennsku í þingflokknum í fjarveru hennar. Dagsetning endurkomu hennar liggur ekki fyrir, en óvíst er hvaða breytingar það mun hafa í för með sér fyrir þingflokkinn. Ólafur Þór Gunnarsson, varaþingmaður Guðfríðar Lilju, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að Guðfríður myndi snúa til baka á þing í apríl næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar hefur verið rætt um fyrstu vikuna í apríl. Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason hafa fylgst að, en Guðfríður Lilja og Ögmundur eru nánir bandamenn. Ögmundur gaf eftir fyrsta sætið í forvali Vinstri grænna fyrir alþingiskosningarnar 2009 og gaf sjálfur út að hann styddi Guðfríði Lilju í toppsætið og stefndi sjálfur á annað sætið. Sem varð síðan niðurstaðan. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Fleiri fréttir Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Sjá meira