Erlent

Milljónir sardína drápust í smábátahöfn

MYND/AP
Milljónir sardína drápust í smábátahöfn í Kalíforníu í gær. Talið er að óveður sem geisaði á þessum slóðum hafi rekið fiskinn inn í höfnina og að þar hafi hann kafnað sökum þrengsla. Ekkert bendir til þess að olíuleki eða önnur mengun hafi orðið þessa valdandi en málið er þó í rannsókn. Nú hamast menn við að hreinsa fiskinn upp úr höfninni því ekki þarf langur tími að líða uns fleiri tonn af dauðum sardínum fara að lykta heldur illa. Ekki hefur verið ákveðið hvað gera skal við þennan óvænta afla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×