Bæjarstjórn skoðar hvort bæjarstjóri eigi að víkja 13. mars 2011 16:33 Ólafur vill að bæjarstjórn víki Ásgerði úr starfi sínu sem bæjarstjóri. Mynd/Samsett mynd Vísis „
Við munum fara yfir málið strax eftir helgina," segir Guðmundur Magnússon, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar, en lögmaður Ólafs Melsted, fyrrum framkvæmdastjóra Tækni- og umhverfissviðs hjá bænum sem hefur verið frá vinnu vegna eineltismáls í rúmt ár, vill að bæjarstjórn víki Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra Seltjarnaresbæjar, úr starfi sínu sem bæjarstjóri. Á miðvikudaginn í síðustu viku fékk bæjarstjórn bréf frá lögmanninum þar sem greint var frá þessu. Í því kemur fram að tveir dómskvaddir matsmenn telja að Ásgerður hafi sýnt Ólafi ámælisverða og ótilhlýðilega háttsemi sem stjórnandi. Ólafur hefur verið frá vinnu vegna eineltisins frá því í janúar á síðasta ári og segir í bréfi lögmanns Ólafs til bæjarstjórnar að í haust hafi hann verið hrakinn úr starfi sínu hjá sveitarfélaginu, „en eins og kunnugt er var það gert með niðurlagningu stöðu hans án endurráðningar." Í bréfinu segir að bæjarstjórn hafi verið kunnugt um ásakanir Ólafs um einelti á vinnustað frá því í febrúar í fyrra. Þrátt fyrir það hafi ekkert verið aðhafst eða kannað nánar á hverju ásaknir hans séu reistar. Ólafur hafi margoft ítrekað ásakanirnar við bæjarstjórnina en það hafi verið virt að vettugi. Hann hafi því nauðbeygður farið þess á leit við héraðsdóm að dómkvaddir yrðu hæfir og óvilhallir sálfræðingar til að leggja mat á það hvort hann hafi orðið fyrir einelti af hálfu Ásgerðar, hverjar séu orsakir þess og hvaða afleiðingar slíkt einelti kann að hafa haft í för með sér á heilsu og líðan hans. Matsmennirnir telja fullsýnt að í fjórum atriðum hafi Ásgerður ótvírætt sýnt Ólafi ámælisverða og ótilhlýðna háttsemi sem stjórnandi og þær breytingar til hins verra á líðan, högum og heilsu Ólafs megi rekja til háttsemi bæjarstjórans. Í lok bréfsins fer Ólafur fram á það að bæjarstjórn veiti Ásgerði formlega áminningu og þá er þess krafist að bæjarstjórn víki Ásgerði úr starfi sínu sem bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, „sbr. meginreglur um aðgerðir vegna eineltis á vinnustað og fyrrnefnd ákvæði um viðbrögð bæjarstjórnar í eineltisáæltun sveitarfélagsins," segir í bréfinu. Þá krefst Ólafur að sveitarfélagið bæti sér það tjón sem hann hefur orðið fyrir en hann hefur þurft að greiða allan kostnað sjálfur vegna veikinda sinna. Þar segir ennfremur að bæjarstjórn sé veittur 20 daga frestur, nánar tiltekið til 28. mars næstkomandi, til að taka afgerandi afstöðu í málinu með það að leiðarljósi að honum verði bætt það tjón sem hann hefur orðið fyrir. „Að öðrum kosti mun umbjóðandi minn (Ólafur innsk. blm.) leita réttar síns fyrir dómstólum." Þá er þess krafist að Ásgerður víki sæti við meðferð þess til að málið hljóti réttláta málsmeðferð. Guðmundur Magnússon, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar, segir í samtali við Vísi að bæjarstjórn muni fara yfir málið eftir helgi en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira