Reynt að lokka stelpur með nammi - sjötta málið á stuttum tíma Erla Hlynsdóttir skrifar 16. mars 2011 10:45 Börnunum ber saman að um dökkleita bíla sé að ræða. Misjafnt er þó hvort þau segja bílinn svartan, gráan eða brúnan. Mynd úr safni
Menn á litlum dökkgráum bíl buðu tveimur tíu ára stúlkum sælgæti gegn því að þær kæmu upp í bíl með sér um miðjan dag í gær. Atvikið átti sér stað á Breiðvangi í Hafnarfirði, við Engjadalsskóla. Stúlkurnar hlupu í burtu, sem lögreglan segir hárrétt viðbrögð. Málið var tilkynnt til lögreglu og hafa nú alls sex tilkynningar borist á síðustu tveimur vikum um menn sem bjóða börnum upp í bíl til sín. „Þetta eru óvenju margar tilkynningar. Þessi mál koma alltaf upp öðru hvoru, en ekki svona mörg," segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Við tökum þessu alvarlega," segir hann.Aukið eftirlit við skóla Hann segir lýsingar þeirra barna sem boðið hefur verið far hjá ókunnugum að undanförnu allar á þann veg að um dökkleitan bíl sé að ræða, oftast svartan. Í bílnum er síðan ýmist einn eða tveir menn sem bjóða börnunum sælgæti eða leikföng. Utan þessa eru lýsingarnar ekki skýrar og hefur lögregla því á litlu að byggja við leit sína að mönnunum. Þannig er ekki hægt að fullyrða að um sömu menn sé alltaf að ræða. Vegna þess hversu óljósar lýsingarnar eru getur lögregla lítið gert, enn sem komið er, annað en að halda saman þeim tilkynningum sem komið hafa. Auk þess sinna lögreglumenn á merktum og ómerktum lögreglubifreiðum eftirliti við skóla. Enginn liggur undir grun vegna málanna.Eitt málið upplýst - faðir að sækja syni sína Í eitt skipti af þessum sex sem tilkynnt hafa verið náði drengur bílnúmeri niður. Þegar lögregla skoðaði málið betur kom í ljós að þar var á ferð faðir sem var að sækja syni sína á íþróttaæfingu og bauð öðrum dreng að koma líka. Drengurinn afþakkaði boðið og höfðu foreldrar hans samband við lögreglu.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Fleiri fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira