Innlent

Áttræður á slysadeild eftir eld í fjölbýlishúsi

Mynd úr safni
Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni um kvöldmatarleytið í gær en vel gekk að ráða niðurlögum hans. Karl um áttrætt býr í íbúðinni og var hann heima þegar eldurinn kom upp en maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Nokkrar skemmdir urðu í eldhúsi íbúðarinnar en óljóst er með reykskemmdir. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×