Banksy borgaði rússneska listamenn úr fangelsi 5. mars 2011 11:34 Banksy bjargar rússneskum listamönnum,
Dularfulli listamaðurinn Banksy borgaði tryggingafé fyrir tvo rússneska listamenn sem voru handteknir af lögreglunni í Moskvu fyrir list sína. Listamennirnir Leonid Nikolayev og Oleg Vorotnikov tilheyra listahópnum Voina, sem þýðir stríð. Listamennirnir rússnesku hafa verið afar umdeildir og gagnrýnt hverskyns yfirvöld harðlega með list sinni. Meðal annars máluðu þeir risastórt typpi á höfuðstöðvar rússnesku öryggislögreglunnar, FSA, sem áður hét KGB. Annar listamannanna stöðvaði svo umferð á einhverri fjölförnustu umferðagötu Moskvu þegar hann gekk á miðjum veginum með bláa fötu á höfðinu til þess að gagnrýna misnotkun ráðamanna og ríkra einstaklinga á bláa forgangsljósinu. Þá tók steininn úr, þegar þeir veltu lögreglubíl. Lögreglan fékk nóg. Listamennirnir lýsa því þegar þeir voru á leiðinni heim til sín ásamt kærustu annars þeirra og tveggja ára syni, fyrir jól þegar hópur manna virtist elta þau. Þeir sögðu að mennirnir hafi virst vera venjulegir óþokkar, ef svo má að orði komast. En mennirnir réðust á konuna, ýttu harkalega við barninu og lömdu listamennina nokkuð illa. Svo handtóku þeir listamennina sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í kjölfarið.Listamaður í einum af gjörningunum.Mennirnir þurftu að dúsa í þrjá mánuði í fangelsi, sem þeir lýsa sem helvíti á jörðu, áður en dómari samþykkti greiðslu breska götulistamannsins Banksy, en hann þurfti að reiða fram 13 þúsund pund, eða tvær milljónir króna, fyrir listamennina. Málinu er hinsvegar langt því frá að vera lokið af hálfu yfirvalda sem vilja skikka listamennina í geðmat. Lögmaður listamannanna segir matið eingöngu framkvæmt til þess að geta lokað þá inni til frambúðar. Hann segir aðferðir lögreglunnar og dómskerfisins í Rússlandi í raun þær sömu og kommúnistar stunduðu á árum áður. Rússnesk yfirvöld lentu svo í klemmu þegar listaverk hópsins, það er að segja typpið á höfuðstöðvum FSA, var tilnefnt til virtust listamannaverðlaunanna í Rússlandi. Athygli vakti að aðeins viku síðar hvarf tilnefningin á dularfullan hátt, og hafa engar útskýringar fengist á því. Listamennirnir láta sér fátt um finnast og segjast ekki leita eftir viðurkenningu listaheimsins. Þeir vilja vekja fólk upp til umhugsunar.
Mest lesið Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Þrír reyndu að komast undan lögreglu Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks Innlent Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent Fleiri fréttir Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Sjá meira