Erlent

Kínverjar hyggjast leyfa tvö börn

Óli Tynes skrifar
Leyfið börnunum að koma í heiminn.
Leyfið börnunum að koma í heiminn.
Kínversk stjórnvöld íhuga að breyta lögum þannig að hjónum verði leyft að eignast tvö börn. Það mun væntanlega gerast fyrir árið 2015. Vegna mikillar mannfjölgunar var gripið til þess ráðs árið 1979 að leyfa aðeins eitt barn. Þetta hefur á síðustu þrjátíu árum leitt til af sér mikinn lýðfræðilegan halla.

Hlutfall stúlkna hefur stórlega minnkað. Kínverjar vilja frekar eignast syni en dætur því synir eru taldir geta gagnast foreldrunum betur í ellinni. Stúlkubörn hafa því verið borin út í stórum stíl. Auk þess hefur þetta auðvitað leitt til þess að þjóðin hefur elst miklu hraðar. Það eru nú færri hendur sem vinna verkin sem þarf að vinna til þess að viðhalda þjóðarframleiðslunni og sjá hinum öldruðu farboð






Fleiri fréttir

Sjá meira


×