Gaddafi býr sig undir ragnarök Óli Tynes skrifar 24. febrúar 2011 11:26 Moammar Gaddafi.
Uppreisnarmenn í Libyu virðast hafa austurhluta landsins á sínu valdi og sækja nú inn í vesturhlutann. BBC fréttastofan segir að í borginni Benghazi standi fólk í biðröðum eftir að fá afhent skotvopn sem rænt hefur verið úr vopnabúrum lögreglu og hersins. Fólkið segist vera að búa sig undir það sem það kallar orrustuna um Tripoli. Allmargar hersveitir í austurhlutanum eru sagðar hafa gengið til liðs við uppreisnarmenn. Fleiri vísbendingar eru um að herinn sé að snúa baki við Moammar Gaddafi. Þannig stukku tveir flugmenn úr flugvél sinni í fallhlífum og létu hana hrapa í eyðimörkinni frekar en gera loftárásir á óbreytta borgara. Fyrr í vikunni var tveim orrustuþotum lent á eynni Möltu, þar sem flugmenn þeirra vildu heldur ekki gera árásir á samborgara sína. Þá hafa sendiherrar Libyu víða um heim sagt sig frá stjórn Gaddafis og ráðherrar og háttsettir embættismenn sagt af sér. Þeirra á meðal er innanríkisráðherra landsins. Gaddafi er sagður hafa víggirt sig á heimili sínu í Trípólí umkringdur vopnuðum stuðningsmönnum. Skriðdrekar eru í úthverfum borgarinnar til þess að mæta uppreisnarmönnum þegar þeir láta sjá sig. Enginn veit á þessari stundu hvort skriðdrekarnir skjóta á uppreisnarmenn þegar til kemur, eða hvort hermennirnir ganga til liðs við þá. Gaddafi hefur lýst uppreisnarmennina réttdræpa og segist sjálfur munu berjast til síðasta blóðdropa.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Fleiri fréttir Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Sjá meira