„Er bara slétt sama hver leigði hverjum“ 26. nóvember 2011 14:00 Guðríður Arnardóttir.
Ármann Kr. Ólafsson Kostnaður við flutning Héraðsskjalasafns Kópavogs úr leiguhúsnæði í eigu Sjálfstæðisflokksins verður meira en tvöfalt hærri en áætlað var í upphafi. Á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag kom fram að kostnaður við flutning Héraðsskjalasafnsins úr Hamraborg á Digranesveg stefnir í að verða 115 milljónir króna í stað 55 milljóna. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sögðu ljóst að reiknuð húsaleiga af húsnæði Héraðsskjalasafnsins muni tvöfalda leigukostnað stofnunarinnar, auk þess að hækka skuldir bæjarins um ríflega 100 milljónir. Formaður bæjarráðs, Guðríður Arnardóttir úr Samfylkingu, bókaði þá að húsnæði Sjálfstæðisflokksins í Hamraborg sem hýst hafi Héraðsskjalasafnið sé með öllu óviðunandi undir safnið. „Auk þess hefur bærinn greitt Sjálfstæðisflokknum leigu upp á rúmar sex milljónir á ári fyrir þetta húsnæði sem er í afar bágu ástandi,“ bókaði Guðríður og sagði að um tvær milljónir myndu þess utan sparast vegna annars leigukostnaðar á skjalageymslum fyrir safnið. Nýja safnið muni uppfylla ströngustu kröfur. „Sá kostnaður sem við spörum vegna leigunnar mun duga fyrir fjármögnun framkvæmdanna á Digranesvegi 7. Við höfum þó skilning á gremju Sjálfstæðisflokksins í þessu máli sem hefur lýst sig andsnúinn málinu frá fyrstu tíð en hann missir nú spón úr aski sínum því það er ekki víst að þeim takist að leigja gamla félagsheimilið sitt á jafn góðum kjörum. Jafnframt hefur leigusamningi vegna húsnæðis sem var í eigu Alþýðuflokksins fyrir tíu árum verið sagt upp,“ bókaði formaður bæjarráðs. Þá bókaði oddviti sjálfstæðismanna, Ármann Kr. Ólafsson, að rétt væri að taka fram að leiguhúsnæði Héraðsskjalasafnsins hafi verið boðið út á sínum tíma og leigan samþykkt af fulltrúa Samfylkingarinnar. „Annar“ leigukostnaður sem talað væri um sé mun eldri leigusamningur sem gerður hafi verið „um gluggalausa kompu, án útboðs á yfirverði, í eigu Samfylkingarinnar eða forvera hennar á sínum tíma og tengdist ekki Héraðsskjalasafninu,“ bókaði Ármann. Þetta kvað Ármann síðan ekki breyta „þeirri staðreynd að það munar 105 prósentum eða 60 milljónum króna á milli upphaflegrar áætlunar og fyrirliggjandi áætlunar“. Sjálfstæðismenn legðu til sérstaka rannsókn á þessum mikla mun. „Mér er bara slétt sama hver leigði hverjum, hvenær og hvernig – þetta var vondur díll!“ bókaði þá Guðríður Arnardóttir að lokum. gar@frettabladid.isDigranesvegur 7 Formaður bæjarráðs segir nýtt húsnæði fyrir Héraðsskjalasafn Kópavogs í gamla pósthúsinu á Digranesvegi standast ströngustu kröfur. Flutt sé úr óviðunandi húsnæði.Fréttablaðið/Vilhelm
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Sjá meira