Innlent

Stolið úr bíl Kidda og Maríu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óprúttinn aðili fór inn í bíl Kidda í Hjálmum og Maríu Rutar Reynisdóttur.
Óprúttinn aðili fór inn í bíl Kidda í Hjálmum og Maríu Rutar Reynisdóttur.
Óprúttinn aðili fór inn í bíl Guðmundar Kristins Jónssonar, sem er þekktur undir gælunafninu Kiddi í Hjálmum, og Maríu Rutar Reynisdóttur, konunnar hans seinni partinn í dag.

Bíllinn stóð fyrir utan Melabúðina þegar farið var inn í hann. „Við töldum okkur hafa læst bílnum og ég var með handtöskuna mina og tölvutöskuna og allt. Við skutumst inn í búð til að versla og þegar við komum til baka var allt horfið,“ segir María. Þjófurinn stal öllu steini léttara, að sögn Maríu. Handtöskunni með síma, skilríkjum, húslyklum og fleiru og tölvutöskunni með MacBook Air tölvu.

Kiddi og María heita fundarlaunum fyrir þann sem vísar þeim á stolnu munina og ef einhver er snar í snúningum fær hann boðsmiða á útgáfutónleika Hjálma sem eru í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×