Bjarni: Erum búnir að ná áttum aftur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. júní 2011 11:30
Fyrirliðinn Bjarni Þór Viðarsson á von á heldur rólegri leik gegn Dönum á morgun heldur en leikurinn gegn Svisslendingum var á þriðjudagskvöldið. Ísland hefur tapað sínum fyrstu tveimur leikjum á EM í Danmörku og verður að vinna stórt á morgun til að eiga möguleika á því að komast áfram í undanúrslit keppninnar. Vonbrigðin hafa þó verið mikil eftir þessa tvo leiki og segir Bjarni að það hafi tekið sinn tíma að rífa upp gleðina í leikmannahópnum á nýjan leik. „Það hefur gengið ágætlega, sérstaklega seinni partinn í gær og í morgun. Fram að því var þetta frekar erfitt en við erum búnir að ná áttum aftur," sagði Bjarni en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Við erum búnir að skora danska liðið mjög vel og förum við enn betur yfir þá á eftir. Ég á von á aðeins öðruvísi leik en gegn Sviss þar sem að Danir pressa ekki jafn mikið og þeir gerðu. Við fáum því aðeins meiri tíma á boltanum. Danir eru auðvitað með frábært lið en þetta verður kannski aðeins rólegri leikur." Eyjólfur Sverrisson þjálfari breytti um leikaðferð í síðasta leik og setti annan sóknarmann í liðið. Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á í hálfleik og stóð sig vel. Bjarni á þó von á að Eyjólfur muni aftur stilla upp í 4-3-3. „Ég veit það auðvitað ekki en mér þætti það líklegast. Leikurinn mun ekki vinnast á fyrsta korterinu og þurfum við að sýna smá þolinmæði. Aftur á móti þurfum við að mæta tilbúnir í leikinn, ólíkt því sem gerðist gegn Sviss." Bjarni neitar því ekki að íslenska liðið þurfi að setja meiri þunga í sóknarleikinn. „Við þurfum að skora mörk og helst mörg mörk. Við munum fara betur yfir þann þátt leiksins í dag og fram að leik á morgun en við erum samt staðráðnir í því að skora mörg mörk. Markmiðið er enn að komast áfram og er sá möguleiki enn fyrir hendi. Við verðum bara að vera jákvæðir, sýna þolinmæði og mæta grimmir til leiks. Þá er allt hægt."
Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjá meira