Aron Einar: Danir með tvo ása á hendi Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 17. júní 2011 10:30
Aron Einar Gunnarsson verður væntanlega aftur í byrjunarliði Íslands á morgun þegar að liðið mætir Danmörku á EM U-21 liða. Aron Einar tók út leikbann í síðasta leik og hefur því beðið spenntur fyrir leiknum á morgun. „Ég fæ að taka þátt í þessu aftur eftir að hafa horft á leikinn gegn Sviss upp í stúku auk þess sem ég fékk ekki að fara inn í búningsklefann, hvorki fyrir né eftir leik," sagði Aron Einar en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. „Ég er klár í slaginn og með ferska fætur. Tilhlökkunin er mikil og munum vonandi ná að sigra Danina loksins." „Við megum samt ekki ana út í neitt því ef við förum út í eitthvað sem við ráðum ekki við verðum við rassskelltir. Vonandi spilum við eins og við getum best því við erum góðir í fótbolta. Ef okkur tekst að skora strax í fyrri hálfleik geri ég ráð fyrir því að þeir fari að sækja meira og þá opnast kannski leikurinn meira." Aron reiknar með því að Danir muni stíga varlega til jarðar í þessum leik. „Þeir eru með tvo ása á hendi og við þurfum bara að sjá til hvernig þetta þróast. Við þurfum alla vega að setja mark á þá í fyrri hálfleik." „Þetta verður erfitt og við vitum að Danir eru með sterkt lið. Vonandi verður þetta skemmtilegur leikur og sama hvernig þetta endar vona ég að við náum að spila okkar leik og náum að rífa okkur upp." Aron segir að það hafi gengið vel að byggja aftur upp stemningu í íslenska landsliðshópnum eftir að liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í mótinu. „Þetta er fínn hópur og við erum flottir saman. Það verður æfing í dag og vonandi verður smá fútt og æsingur í henni. Ég hef engar áhyggjur að okkur takist ekki að gera þjóðina stolta af okkur á morgun - ég vona það alla vega. "
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Fleiri fréttir Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Sjálfsmark endaði sigurgönguna og dramatík í Aserbaísjan Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Íslensku landsliðskonurnar spila á heimavelli Nottingham Forest Frakkar munu að svo stöddu ekki sniðganga HM vegna Grænlands Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu