Danski landsliðsþjálfarinn: Þurfum að giska á nálgun íslenska liðsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Álaborg skrifar 18. júní 2011 12:00 Keld Bordinggaard fagnar með Nicolai Jörgensen, leikmanni danska U-21 liðsins. Nordic Photos / AFP
Keld Bordinggaard, þjálfari danska U-21 landsliðsins, segir að hans þjálfarateymi hafi eytt miklum tíma í að hugsa um leikstíl íslenska liðsins. Ísland og Danmörk mætast á EM U-21 liða í kvöld og þurfa bæði lið að sækja til sigurs. Danir mega alls ekki tapa og þurfa einnig að stóla á hagstæð úrslit í leik Sviss og Hvíta-Rússlands til að komast áfram. Vísir spurði Bordinggaard á blaðamannafundi danska liðsins í gær hvernig þeir reikna með að íslenska liðið muni spila í kvöld. „Við höfum reyndar eytt miklum tíma í að velta því fyrir okkur. Svo virðist sem að Ísland spili aðeins á einn veg og hann liggur fram á við. En íslenska liðið getur einnig stjórnað leiknum og verið þolinmóðir eins og við sáum í undankeppninni.“ „Það eina sem við getum gert er að giska á hvernig íslenska liðið mun nálgast leikinn og munum við undirbúa okkur á mismunandi hátt. Okkur hefur gengið vel á að giska á fyrirfram hvernig leikir okkar munu þróast í mótinu og við höfum trú á því að við getum gert það aftur.“ „Leikstíll okkar býður upp á að spila gegn liðum sem nota mismunandi leikaðferðir. Við erum því fullir sjálfstrausts jafnvel þó svo að við þurfum að giska á nálgun íslenska liðsins til leiksins.“ Bordinggaard segir að íslenska liðið hafi verið óheppið á mótinu. „Það eru margir frábærir knattspyrnumenn í liðinu og leikskipulag liðsins er mjög skilvirkt. Það er erfitt að eiga við þessa leikmenn og þeir hlaupa mikið. Íslendingar hafa valdið mörgum erfiðleikum í gegnum tíðina.“ „Þeir hafa verið óheppnis á þessu móti. Þeir stjórnuðu leiknum gegn Hvíta-Rússlandi en fengu svo rautt spjald og víti á sig og töpuðu leiknum. Það geta allir tapað fyrir Sviss - eins og við vitum sjálfir manna best - en ég á von á því að sjá íslenskt lið sem líkist því hvernig það var í undankeppninni. Þetta verður erfiður leikur fyrir okkur.“
Mest lesið Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Leik lokið: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Íslenski boltinn KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Íslenski boltinn KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum Íslenski boltinn Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Fram - Keflavík | Bæði leita fyrsta sigursins Breiðablik - ÍA | Spennandi slagur í Kópavogi KR - Þór | Aðrir nýliðar í Vesturbænum KA - Víkingur | Meistararnir á Akureyri Kjósa um hvort næsta tímabili Sveindísar verði snúið við Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Sjá meira