Innlent

Fá nú þjónustu í heimabænum

Ný atvinnumiðstöð verður opnuð innan tíðar í Hafnarfirði.
Ný atvinnumiðstöð verður opnuð innan tíðar í Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær og Vinnumálastofnun hafa samið um stofnun og rekstur atvinnumiðstöðvar sem opnuð verður í Hafnarfirði á næstunni. Óánægja hefur verið meðal atvinnulausra í Hafnarfirði um að þurfa að sækja þjónustu atvinnu­miðstöðvar til Reykjavíkur.

„Sérstaklega er stefnt að því að efla vinnumiðlun og faglega starfs- og námsráðgjöf, auka virkni atvinnuleitenda og byggja upp fjölbreytt framboð vinnumarkaðsúrræða á svæðinu, til dæmis með auknum ráðningum atvinnuleitenda í starfsþjálfun, reynsluráðningum, vinnustaðanámi, átaksverkefnum og fleira,“ segir í tilkynningu sem send var út í tilefni samkomulagsins. Fimm starfsmenn verða hjá Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×