Erlent

Um 40 handteknir vegna óeirða á Amager

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Danska lögreglan handtók um 40 ungmenni sem voru með hávaða og uppsteyt á Amager í Kaupmannahöfn í gærkvöld.

Ungmennin voru handtekin eftir að þau köstuðu steinum og flöskum að lögregluþjónum sem voru kallaðir til eftir að ungmennin höfðu stöðvað umferð. Í morgun var fólkinu sleppt úr haldi en það má búast við að verða ákært fyrir brot á allsherjarreglu, segir Jyllands Posten.

Danska lögreglan segir óvíst hvað olli óeirðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×