Slysalegt sjálfsmark Pepe Reina tryggði Arsenal stig á Anfield Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2010 16:55 Joe Cole fær hér rauða spjaldið. Mynd/AP
Tíu menn Liverpool voru aðeins nokkrum mínútum frá því að vinna sigur á Arsenal í fyrsta deildarleiknum sínum undir stjórn Roy Hodgson þegar liðin mættust á Anfield í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Pepe Reina, markvörður Liverpool, varð fyrir því óláni að missa boltann í netið á 90. mínútu eftir að Marouane Chamakh hafði sett boltann í stöngina. Markið kom eftir mikla pressu frá Arsenal á síðustu mínútum leiksins. Liverpool þurfti að leika manni færri allan seinni hálfeikinn eftir að Joe Cole var rekinn útaf í lok fyrri hálfleiksins en komst engu að síður í 1-0 í upphafi seinni hálfleiks. Joe Cole fékk rautt spjald á lokamínútu fyrri hálfleiks fyrir harða tæklingu á Laurent Koscielny. Brotið leit illa út en rauða spjaldið var samt mjög strangur dómur. Koscielny var borinn af velli á börnum en hélt síðan áfram leik eftir hálfleikinn. David N'Gog kom Liverpool yfir á fyrstu mínútu seinni hálfleiks þegar hann afgreiddi sendingu Javier Mascherano inn í teiginn með frábærum hætti upp í markhornið. Það leit út fyrir að ætlaði að verða sigurmarkið í leiknum en á 90. mínútu bar pressa Arsenal árangur. Tomás Rosicky gaf boltann fyrir, Marouane Chamakh var á undan Pepe Reina í boltann sem fór í stöngina. Þegar Reina ætlaði síðan að grípa frákastið missti hann boltann hinsvegar frá sér og yfir marklínuna. Laurent Koscielny fór síðan sömu leið og Joe Cole í uppbótartímanum þegar hann fékk tvö gul spjöld með stuttu millibili.
Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Körfubolti Fleiri fréttir Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Sjá meira